Elliðavatn - Háskóli fluguveiðimannsins

Félagsmönnum SVFR stendur til boða að kaupa veiðileyfi í Elliðavatni, en í vatninu er gnægð bleikju og urriða. Oft er rætt um Elliðavatn sem háskóla fluguveiðimannsins, því fiskurinn þar er dyntóttur með afbrigðum. En þegar veiðimenn hitta á réttu fluguna er enginn svikinn af því að veiða þar.
Félagsmenn þurfa að fara að bæjunum Elliðavatni eða Vatnsenda og framvísa þar gildu félagsskírteini fyrir árið 2008 og geta þá fengið keypt veiðileyfi með 20% afslætti.
Börn og unglingar 12 ára og yngri, og Reykvíkingar sen eru 67 ára og eldri fá frítt í Elliðavatn á vegum borgarinnar. Eftir sem áður þurfa hlutaðeigandi að fara að öðrum hvorum bænum og fá þar veiðileyfi.

Elliðavatn - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Í Reykjavík
Veiðisvæði: Fyrir landi bæjarins Elliðavatns eða Kríunesi
Tímabil: Veiðitíminn í Elliðavatni er frá 1. maí til og með 15. september.
Veiðileyfi: Einn eða fleiri dagar í senn eða sumarkort.
Daglegur veiðitími: Frá kl. 7 - 23
Fjöldi stanga:
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn
Vinsælar flugur: Tailor, Gulur og svartur kúluhaus, Brúnn Moli, Kopar Moli.
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Elliðavatn - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
1/5 - 15.9 Ótakmarkaður Veiðikort. Veiðileyfi fást aðeins á bæjum Elliðavatni og Kríunesi ekki hjá SVFR
“Eftir að hafa veitt í Elliðavatni í rúmlega 50 ár, finnst mér það standa upp úr að öðrum vötnum ólöstuðum.”
Jón Pedersen
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French