t
Hítará – vorveiði
Hítará I
Vorveiði á bleikju er í apríl en þá er helst von á bleikjunni, þó enn sé hætta á að ís sé í ánni. Þessi vorveiði er aðeins á neðstu svæðum árinnar frá veiðihúsinu Lundi og niður úr. Einnig er heimilt er að reyna fyrir sér í þverlækjum sem renna í ána á þessu svæði, s.s Reyðarlæk. Auk sjóbleikjunnar er sjóbirtingur á svæðinu, þótt í minna mæli sé. Veiðimönnum er skylt að sleppa hoplaxi. Gistiaðstaða er í Lundi, veiðihúsinu við Brúarfoss og er þar eldunaraðstaða. Gisting í einu tveggja manna herbergi er innifalin í stangarverði. Leyfðar eru tvær stangir, og eru þær aðeins seldar saman í einn eða fleiri daga í senn frá morgni til kvölds.
| Hítará I - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Mýrar, um 100 km. frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: |
Frá veiðihúsinu Lundi og niður að ósi. |
| Tímabil: |
1. apríl til 30. apríl. |
| Veiðileyfi: |
Einn eða fleiri dagar í senn. Veitt er frá morgni til kvölds. |
| Daglegur veiðitími: |
Frá kl. 7.00 - kl. 20.00. |
| Fjöldi stanga: |
2 |
| Leyfilegt agn: |
Fluga, maðkur og spónn. |
| Vinsælar flugur: |
Í vorveiðinni er um að gera að reyna sem flestar silungaflugur, smáar, kúluhausa og um að gera að vera frjór í hugsun. |
| Veiði síðastliðið ár: |
|
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Veiðimenn mega koma í húsið klukkustund eftir að veiðitíma lýkur, daginn fyrir veiðidag og ber að rýma það á sama tíma brottfarardag. Svefnaðstaða er í húsinu og leggja veiðimenn sjálfir til sængur, kodda, sængurfatnað, mat og allar hreinlætisvörur. Vinsamlegast gangið vel um veiðihúsið, ræstið það vel fyrir brottför og takið með ykkur allt rusl. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er sem leið liggur í gegnum Borgarnes, beygt til vinstri út á Mýrarnar í átt að Snæfellsnesi. Frá Borgarnesi að veiðihúsi eru um 40 km. Annað
Ekið er sem leið liggur í gegnum Borgarnes, beygt til vinstri út á Mýrarnar í átt að Snæfellsnesi. Frá Borgarnesi að veiðihúsi eru um 40 km.
| Hítará I - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 1/4 - 30/4 |
2 |
5.400 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Ná í kort
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
"Í Hítará eru afbragðsfallegir veiðistaðir og ég er viss um að skaparinn hafði fluguveiðimenn í huga þegar hann formaði ána og umhverfi hennar. Langidráttur og Grettisstillur eru staðir sem má una sér við heilu dagana og ekki má gleyma Breiðinni, þar sem veiðimenn eru svo sannarlega í návígi við þann silfraða.
Veiðihúsið er glæsilegt og hefur verið varðveitt í þeirri mynd sem Jóhannes á Borg skildi við það, enda segja sumir að hann vaki ennþá yfir svæðinu. Nálægð veiðistaðanna og veiðihússins býður uppá einstaka stemmingu fyrir samhentan veiðihóp og Hítará er svo sannarlega ein af perlunum í íslenskri laxveiði."
Bjarni Júlíusson
Fara efst á síðu