t
Gufudalsá – Skemmtileg sjóbleikjuá
Gufudalsá
Gufudalur í Austur-Barðarstrandarsýslu geymir eina bestu sjóbleikjuá landsins. Árlega veiðast yfirleitt í kringum eitt þúsund bleikjur á vatnasvæðinu en Gufudalsá er dragá sem safnar vatni úr smálækjum og fellur í gegnum Gufudalsvatn. Á botni vatnsins skiptast á gróðurflákar og sandur og minnir það um margt á Flóðið í Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu, nema hvað það er miklu minna að flatarmáli. Helsta þveráin er Álftadalsá sem er nokkuð kaldari en Gufudalsá og vatnsmagn hennar er mjög breytilegt.
Aðgengi að veiðistöðum er gott og nýtt veiðihús er við ána. Töluvert af veiðinni kemur á land úr Gufudalsvatni en mikilvægt er að það gári aðeins ef fiskur á að taka.
| Gufudalsá - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Gufudalur er í 250 km. fjarlægð frá Reykjavík. |
| Veiðisvæði: |
Gufudalsá öll frá ósi og að efri fossum ofan Gufudalsvatns og Gufudalsvatn allt. Heildarlengd veiðisvæðisins er u.þ.b. 8 km. |
| Tímabil: |
10. júlí – 8. september |
| Veiðileyfi: |
Þriggja daga holl frá fimmtudagseftirmiðdegi til hádegis á sunnudegi og síðan tvö tveggja daga holl. 4 stangir í ánni og vatninu. Börnum í fylgd veiðimanna er þó heimilt að veiða með fleiri stöngum í vatninu, en þó aðeins að áður höfðu samráði við veiðiréttareigendur í Fremri-Gufudal. |
| Daglegur veiðitími: |
Veiðitíminn er 12 klst. á dag á tímabilinu frá kl. 7-22 heila daga en á skiptidögum skal veiði lokið kl. 13 og má hefjast á ný kl. 15. Lengri hvíldartími er við fossa ofan vatns skv. nánari veiðireglum í veiðihúsi. |
| Fjöldi stanga: |
|
| Leyfilegt agn: |
Fluga, maðkur og spónn. |
| Vinsælar flugur: |
Heimasæta, Mýsla, Black Zulu, ýmsar þurrflugur og ýmsir kúluhausar voru vinsælastir á árinu. Litlar flugur, allt niður í stærðir 14 til 16, eru vinsælastar í Gufudal. Mest er veitt á flotlínu í vatninu og hægt sökkvandi línu í ánni. |
| Veiði síðastliðið ár: |
1000 bleikjur, 20 laxar og tveir sjóbirtingar |
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Rafvætt og einstaklega þægilegt veiðihús. Húsið er með sex tveggja manna herbergjum, fjórum með rúmum og tveimur með kojum. Eldhús með eldhúsáhöldum og borðbúnaði er fyrir 12, borð- og setustofa, baðherbergi, snyrting, forstofa, kæligeymsla o.fl. Á staðnum er kolagrill. Veiðimenn eru beðnir um að ganga vel um húsið og minntir á að taka með sér allt rusl að lokinni dvöl en ruslagámur er niður við þjóðveg, þrífa húsið vel og skilja eftir opið. Veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað eða svefnpoka, allar hreinlætisvörur og matvæli. Veiðimenn mega koma í hús klukkutíma áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkustund eftir að veiði lykur.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Frá Reykjavík eru um 250 km. vestur í Gufudal, og er ekið um Borgarnes, Bröttubrekku, Dali og Gilsfjarðarbrú, og áfram vestur þjóðveg nr. 60, fyrir Þorskafjörð, yfir Hjallaháls og fyrir Djúpafjörð, yfir Ódrjúgsháls í Gufufjörð. Frá vegamótum í Gufudal er ekið inn dalinn yfir litla brú og beygt strax til hægri og er veiðihúsið við enda slóðans niður undir Gufudalsvatni. Annað
Mikilvægt er að skrá alla veiði í veiðibók og er sérstaklega brýnt fyrir veiðimönnum að skrá aðeins einn fisk í hverja línu veiðibókarinnar.
Hestaleiga er í Fremri-Gufudal og sundlaug í Djúpadal.
| Gufudalsá - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 8/7 - 15/7 |
4 |
8.900 |
| 15/7 - 26/8 |
4 |
11.900 |
| 26/8 - 9/9 |
4 |
8.900 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Engin veiðikort skráð
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
Fara efst á síðu