t
Grímsá – Sjóbirtingsveiði 25. september - 10 .október, 1.apríl - 15.maí.
Grímsá í Borgarfirði
Grímsá í Borgarfirði - Sjóbirtingur
Grímsá í Borgarfirði er landsþekkt laxveiðiá. Í ána gengur mikill fjöldi sjóbirtinga og nú hefur verið ákveðið að nýta þau tækifæri sem bjóðast til haust- og vorveiða. Hér er um skemmtilegan kost að ræða í hæfilegri fjarlægð frá höfuðborginni.
Veiðarnar eru stundaðar í neðri hluta árinnar eða frá brúnni við Fossatún og niður að Árbakkaklöpp. Hér má finna marga nafntogaða og rómaða veiðistaði, en nú gefst félagsmönnum okkar í fyrsta sinn tækifæri til að reyna sig við sjóbirtinginn í þessari stórskemmtilegu veiðiá með flugustöng að vopni.
| Grímsá í Borgarfirði - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Borgarfjörður, um 80 km frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: |
Frá og með Hörgshyl að ofanverðu að og með Árbakkaklöpp að neðanverðu. Athugið að veiði er ekki leyfð á griðarstað laxa á eftirfarandi veiðistöðum; Móbergshyl, Svartastokki, Húsbreiðu, Stórlaxaflöt og Lambaklettsfljóti |
| Tímabil: |
25. september - 10. október og 1. april - 15. maí |
| Veiðileyfi: |
Einn eða fleiri dagar í senn. |
| Daglegur veiðitími: |
Daglegur veiðitími er frá kl. 8 til 20 án hlés. |
| Fjöldi stanga: |
2 |
| Leyfilegt agn: |
Eingöngu fluguveiði. Öllum laxi skal sleppt án undantekninga. |
| Vinsælar flugur: |
Black Ghost, Grey Ghost, Heimasæta, Nobler |
| Veiði síðastliðið ár: |
|
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Ekki fylgir veiðihús sjóbirtingsveiðinni og er hún seld í stökum dögum frá morgni til kvölds.
| Grímsá í Borgarfirði - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 1/4 - 30/4 |
2 |
5.500 |
| 1/5 - 15/5 |
2 |
3.500 |
| 25/9 - 10/10 |
2 |
14.900 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Ná í kort
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
Fara efst á síðu