• Félagsstarf Stangaveiðifélags Reykjavíkur
  • Stangaveiðifélag Reykjavíkur stendur fyrir öflugu félagsstarfi. 
  • Opin Hús
    Meðal þess eru opin hús sem haldin eru fyrsta föstudag í hverjum mánuði frá desember til maí á vegum skemmtinefndar félagsins þar sem kynnt eru ársvæði vítt og breitt af landinu, veiðivörur ofl. er tengist veiði.  Oftast er góð mæting á opnu húsin og eru þau ávalt auglýst á vef félagsins.
  • Árshátíð
    Þá heldur félagið árshátíð í febrúarmánuði, sem yfirleitt er vel sótt og er ein glæsilegasta árshátíð sem haldin er hérlendis.
  • Fluguhnýtinganámskeið
    Félagið stendur fyrir fluguhnýtinganámskeiðum og fluguhnýtingakeppnum.
  • Flugukastnámskeið
    Í samráði við Kastklúbb Reykjavíkur og Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar eru haldin nokkur flugukastnámskeið á hverjum vetri.
  • Fræðslustarf 
    Yfir vetrartímann býður fræðslunefnd félagsins upp á svokölluð "hnýttu-bíttu" kvöld þar sem félagsmönnum er veitt tilsögn í fluguhnýtingum, sagðar eru veiðisögur og kaffi á könnunni.
  • Barna- og unglingastarf
    Hlutiaf öflugu fræðslustarfi er barna- og unglingastarf félagsins.  Mikil áhersla er lögð á það en þar er öllum félagsmönnum 18 ára og yngri boðið á ýmsar uppákomur, m.a. veiðileiðsögn um Elliðaárnar fjóra eftirmiðdaga á hverju sumri undir eftirliti reyndra veiðimanna og fleira.

 
Icelandic English Spanish German French