Fræðslunefnd

Dagskráin fyrir starfsárið 2010.

Nú er Fræðslunefnd félagsins farin á fullt og undirbúningur að hnýtingakvöldum þeirra félaga hafinn. Kvöldin hafa notið mikilla vinsælda og leiðbeinandi er sem fyrr hinn magnaði Sigurður Pálsson. Þessir skemmtilegu viðburðir standa félagsmönnum SVFR opnir og er velkomið að taka með sér gesti.

Kvöldin verða sem hér segir:

27. janúar - 03. febrúar, aukakvöld fyrir byrjendur - 10. febrúar - 17. febrúar, aukakvöld fyrir byrjendur - 24. febrúar - 10. mars - 24. mars - 7. apríl - 21. apríl - 5. maí - 19. maí

Sem fyrr er hnýtt í sal SVFR við Háaleitisbraut og hefjast öll kvöldin klukkan 19.30 og hnýtt er til c.a. 22.00.

Allir áhugasamir stangaveiðimenn eru hvattir til þess að mæta. Hér er kjörinn vettvangur fyrir vana sem óvana að koma saman, hnýta flugur og spjalla. Allt efni er á staðnum og einnig þau tæki sem þarf til hnýtinganna.

Veiðidagar barna í Elliðaánum eru:

Dagarnir fyrir 2011 liggja enn ekki fyrir. Unglingum verður sent bréf með nánari upplýsingum um þetta og þurfa að skrá sig hjá skrifstofu sem fyrst eftir að þeir fá bréfið. Mikil ásókn er í þessa daga og því er nauðsynlegt að skrá sig sem fyrst.

Fræðslunefndin hefur einnig ákveðið að vera með kastnámskeið við Rauðavatn í lok maímánaðar og verður það auglýst nánar í maí.
 
Icelandic English Spanish German French