Skemmtinefnd
Opin hús
Meðal þess sem skemmtinefnd stendur fyrir eru opin hús sem eru haldin fyrsta föstudagskvöld hvers mánaðar frá desember og fram í maí. Þar eru kynnt ársvæði víða um landið og haldnar vandaðar veiðistaðalýsingar. Kynntar eru veiðivörur frá hinum ýmsu seljendum og happahylurinn er vinsæll meðal félagsmanna enda eru glæsilegir vinningar í boði.
Árshátíð
Þá skipuleggur skemmtinefnd árshátíð félagsins sem hefur unnið sér sess sem ein glæsilegasta skemmtun sem boðið er upp á hérlendis. Þátttaka í árshátíðinni er yfirleitt góð og skemmtiatriði eru frábær.