Um svfr.is                                                                                                                  

  • Svfr.is er veiðivefur Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Verkefnisstjóri stjórnar er Árni Friðleifsson, stjórnarmaður. Yfirumsjónarmaður daglegs reksturs vefsins er Páll Þór Ármann,  framkvæmdastjóri SVFR, póstfang svfr@svfr.is  Ritstjóri Svfr.is er Haraldur Eiríksson og hægt er er að senda honum póst með ábendingum og athugasemdum á póstfangið ritstjori@svfr.is. Hér fyrir neðan er fjallað um einstaka þætti svfr.is.
  • Veiðileyfavefur 
    Á heimasíðunni er að finna upplýsingar um öll veiðisvæði og veiðileyfi sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður í almennri sölu til félagsmanna sem og annarra. Hannað hefur verið nýtt og aðgengilegt sölukerfi veiðileyfa þar sem notendur vefsins geta á einfaldan og öruggan hátt gengið frá frá kaupum á veiðileyfum á veiðisvæðum SVFR og prentað þau út að viðskiptum loknum. Meðal nýjunga á veiðileyfavefnum má telja fullkomið veiðileyfaleitarforrit undir heitinu “Veiðileyfaleitin” sem gerir notendum síðunnar kleift að finna laus veiðileyfi á því verðbili og tímabili sem þeim hentar hverju sinni. Félagsmenn fá veiðileyfi á 20% ódýrara verði en utanfélagsmenn. Upplýsingar um inngöngu í félagið er að finna undir liðnum “Um félagið.” Einnig eru á veiðileyfavefnum upplýsingar um öll veiðisvæði sem heyra undir Landssamband Veiðifélaga af vef samtakanna angling.is. 
  • Fréttavefur 
    Á fréttavef eru að finna vandaðar fréttir um stangaveiði á Íslandi og málefni sem þeim tengjast. Reglulega bætist við fjöldi frétta sem hægt er að fletta upp aftur í tímann. Einnig hægt að leita í öllum fréttabankanum sem myndast. Á fréttasíðunni er auk þess að finna veiðisögur, pistla um stangaveiði, veiðitölur og fleira. Fréttastreymið ræðst eðlilega mikið af sambandi félagsmanna við ritstjóra síðunnar. Félagar Stangaveiðifélagsins sem og gestir á ársvæðum okkar eru hvattir til að koma öllum fréttum til ritstjóra hvort sem þær eru af veiði, aflabresti, skilyrðum til veiða, veiðisögum eða hverju öðru forvitnilegu sem lítur að stangaveiði.
  • Kortavefur 
    Halldór Jörgensson, landfræðingur hjá Samsýn, vinnur nú ásamt árnefndum félagsins að sérstökum kortavef Svfr.is sem geyma mun fullkomin veiðikort með upplýsingum og myndum af öllum veiðistöðum á veiðisvæðum SVFR. 
  • Spjallvefur 
    Spjallvefurinn er lifandi vettvangur almennrar umræðu og er hann öllum opinn sem vilja senda inn fyrirspurnir eða taka þátt í umræðu um málefni tengd stangaveiði. Athugið að þátttakendur eru beðnir um að gæta velsæmis í skrifum sínum og er ritstjóra heimilt að fjarlægja pósta. Hefur hann úrskurðarvald þegar að skrif eru fjarlægð en ber honum jafnframt að geta þess þegar að svo er gert.
  • Leikjavefur 
    Þátttaka í leikjum á Svfr.is er öllum heimil. Þeir sem senda inn netfang sitt verða um leið félagar í netklúbbi svfr.is. Netklúbburinn býður reglulega upp á ýmis spennandi tilboð sem send eru meðlimum. 
  • Myndavefur 
    Á myndavefnum er að finna myndir frá ársvæðum félagsins og aðrar myndir tengdar stangaveiði. 
 
Icelandic English Spanish German French