01. September 2010Enn er hörkuveiði í Dölunum
Síðasta holl í Laxá í Dölum fékk 104 laxa á sex stangir og setur ána í 1.300 laxa. Úr Krossá á Skarðsströnd eru komnir 260 laxar.
Það er feikna veiði í Laxá í Dölum þetta árið, og þrátt fyrir að lítið vatn sé í ánni þá náði síðasta þriggja daga holl yfir eitthundrað löxum á dagsstangirnar sex. Í bók hafa verið skráðir 1.300 laxar og allur septembermánuður eftir sem jafnan er mjög góður tími í Dölunum. Í fyrra gaf Laxá 1440 laxa og því ljóst að fram heldur sem horfir þá verði veiðin þetta árið umtalsvert meiri, og slái jafnvel hátt í sumrin 1986 og 1988 þegar um og yfir 2000 laxar veiddust í Laxá.
Mikill lax er enn í ánni og rigningar gætu sett miklar aflahrotur í veiðina.
Við fengum þær fréttir frá Trausta Bjarnasyni á Á að Krossá væri komin í 260 laxa. Talsvert hefur verið að ganga í Krossá síðustu daga eftir mikla þurrka í sumar.