01. September 2010Er þetta upphafið á haustveiðinni í Stóru?
Veiðifélagarnir í veiðiklúbbnum Óðflugu voru að koma út Stóru-Laxá. Fengu þeir dimmviðri á öðrum degi og greinilegt að lax var á ferðinni úr jöklinum.
Eftirfarandi póst fengum við frá þeim félögum.
"Við félagarnir úr veiðiklúbbnum Óðfluga - Angling Club vorum að koma úr Stóru Laxá 1&2 ásamt nokkrum úr veiðiklúbb sem kalla sig Dýrbítarnir og vorum við allir að fara í fyrsta skipti í Stóru Laxá. Það var flott veiðiveður þegar við mættum á svæðið en áin var frekar vatnslítil og vorum við nú ekkert of vongóðir með veiðina og veiðibókin sýndi okkur að einn og einn lax væri að koma á land. Um nóttina eftir fyrstu vaktina komu nokkrir dropar og það hjálpaði okkur greinilega og lönduðum við 10 löxum og misstum nokkra til og allir laxarnir voru spegil silfraðir nema einn sem var aðeins litaður og var um 9 pundin. Flesta laxana tókum við í Kóngbakka og Laxárholti og það væri ekki ólíklegt að næstu holl mundu lenda í einhverjum ævintýrum og ég tala nú ekki um ef það færi að rigna. "
Mynd; Einn af tíu löxum þeirra félaga. Ljósmynd; Róbert Rúnasson