06. September 2010Héðan og þaðan
Það liggja fyrir lokatölur úr Elliðaánum en veiði lauk þar formlega um síðustu mánaðarmót. Umtalsverð veiðiaukning er frá fyrra sumri.
Lokatölur úr
Elliðaánum þetta sumarið eru 1.162 laxar á móti 880 löxum sumarið 2009. Mun meiri lax var í ánum í sumar og er það einkar ánægjulegt í ljósi þess að um hreina náttúrulega göngu var að ræða þar sem seiðasleppingar undanfarinna ára hafa misfarist sökum nýrnaveikismits. Þetta er sem fyrr mjög góð veiði á aðeins fjórar til sex dagsstangir, að ekki sé talað um þegar að kvóti er aðeins tveir laxar á vakt.
Úr
Haukadalsá efri fengum við upplýsingar um að 240 bleikjur væru skráðar í bók. Einhver teikn eru um að hún sé að færa sig upp fyrir ósinn við vatnið þar sem síðasta holl sá bleikjur ofar í ánni. Að auki eru í veiðibókinni 24 laxar. Í fyrra varð algjör aflabrestur í bleikjunni á þessum slóðum, og þá gaf svæðið aðeins rúmlega 60 bleikjur.
Hjaltadalsá og Kolka hafa verið að fá nýgengna laxa upp á síðkastið. Sem betur fer er enginn við veiðar í dag, enda líklegast æði mikill litur á vatninu eftir hátt hitastig síðustu daga. En það er talsverður fiskur undir og 59 laxar og 200 bleikjur eru í veiðibókinni. Þess má geta fyrir áhugasama að gæsaveiði fylgir stangaveiðileyfunum.
Af aðalsvæði
Hítarár á Mýrum er það að frétta að veiði er afskaplega róleg. Holl sem veiddi frá þriðjudegi til fimmtudags fékk fjórtán laxa, en þeir sem tóku við og veiddu til laugardags veiddu aðeins þrjá. Lítið vatn hefur verið í ánni í nær allt sumar og laxinn ekki sérlega vel dreifður, heldur bunkar sig í Langadrátt, Grettisstillur og Hagahyl. Holl sem er við veiðar nú var komið með þrjá laxa eftir fyrri daginn.
Úr
Norðurá í Borgarfirði er sömu sögu að segja. Holl sem veiddi hádegi föstudags til hádegis sunnudags var með sextán laxa. Áin er erfið til veiða sökum þess að enn á ný er vatnsleysi mikið vandamál á þessum slóðum.
Meðfylgjandi mynd er tekin í hollinu sem lauk veiðum á
Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal á hádegi í gær. Þar má sjá kunnulegt andlit með 24 punda dreka úr Vitaðsgjafa. Það er að sjálfsögðu stórlaxadrottningin Mjöll Daníelsdóttir rekstraraðili veiðihúsanna í Norðurá, Langá og Laxá í Dölum sem þarna hampar laxinum ásamt Árna Pétri Hilmarssyni í Nesi. Laxinn tók Night Hawk númer 8 á einkrækju og var landað eftir mikinn eltingarleik að kveldi 2. september. Stækka má myndina með því að smella á hana.