06. September 2010Meira af Laxá í Dölum
Vikuveiðin í Laxá í Dölum hljóðar upp á 285 laxa á sex stangir. Síðasta holl fékk 84 laxa þrátt fyrir vatnsleysi og tæplega 20 gráðu hita.
Laxá í Dölum ætlar að skila mikilli veiði þetta árið. Samkvæmt Jóni Þ Einarssyni sem var við veiðar dagana 1-4 september þá er mikill lax í ánni. Fékk Jón ásamt veiðifélaga sínum 19 laxa á stöngina en hollið fékk líkt og áður segir yfir 80 laxa. Talsvert hefur verið af vænum laxi nú síðla sumars og í síðasta holli kom upp einn sannkallaður "Dalabrandur" en 20 punda lax fékkst í Lambastaðastreng. Veiðimaðurinn var Ingimar Bjarnason.
Samkvæmt tölum vefsíðunnar Angling.is þá var Laxá með næst mestu vikuveiðina ef horft er á þær ár sem byggja á náttúrulegu klaki. Aðeins Miðfjarðará skilaði meiri veiði.