06. September 2010

Sjóbirtingurinn mættur í Tungufljótið

Við fengum póst frá Gylfa Jóni Gylfasyni sem var að koma ásamt félaga sínum úr Tungufljóti. Greinilegt er að sjóbirtingurinn er mættur í fljótið.

"Það var lítið búið að skrá í veiðibókina þegar við komum í veiðihús í gær tveir sjóbirtingar og að mig minnir þrír laxar. Annað staðbundinn urriði og bleikja Það var því með hæfilegri bjartsýni sem við Baldur Guðmundsson félagi minn héldum niður á næst neðsta veiðistað árinnar og hófum veiðar. Við ákváðum að byrja neðan frá en þarna hagar svo til að áin er að eta úr meira en mannhæðarháum rofabakka.Meðfram rennur svo vatnið úr Tungufljóti en rétt utan við eru svo vatnaskil þar sem jökulvatnið blandast saman við. Það var mikið vatn í fljótinu, það hafði rignt stöðugt alla leiðina austur og sífellt bætti í vind. Um tíma var svo hvasst að spúnarnir hegðuðu sér eins og þeir væru í teiknimynd. Vegna vindsins snéru þeir stundum við í loftinu og lentu rétt við tærnar á okkur. Við grófum upp það þyngsta sem við áttum í boxinu og þá tókst að koma agninu út. Það var bót í máli að ekki þurfti að kasta langt því vatnaskilin voru ekki nema örfáa metra fra landi. Eftir um hálftíma veiði tók fyrsti fiskurinn og næstu þrír tímarnir voru ógleymanlegir. Við vorum stöðugt í fiski og enduðum á því að landa einum 3,5 kg laxi og10 sjóbirtingum á stöngina þessa fyrstu vakt, þeim stærstu 5 og 5,5 kg. Við Baldur hættum snemma á þessari vakt og fórum í hús bæði vegna þess að veðrið var orðið þannig að varla var stætt því sífellt bætti í vind og svo vorum við bara orðnir saddir. Allir sjóbirtingarnir voru óvenju vel haldnir. Félagarnir á hinum stöngunum voru einnig í fiski ofar í ánni en þar var hann tregari til að taka. Við urðum því miður að fara snemma en erum þess að sjálfsögðu fullvissir að hinar stangirnar verði áfram í veislunni á fram á mánudag. "

Mynd; Baldur Guðmundsson með einn af sjóbirtingum þeirra félaga.

  • 03. febrúar 2012

    Minnum á Opna húsið í kvöld

    Við minnum á að fyrsta skemmtikvöld nýs árs er í kvöld, föstudaginn 3. febrúar. Sem fyrr fer gleðin fram í sal Stangaveiðifélags Reykjavíkur að Háaleitisbraut...[+]

  • 02. febrúar 2012

    Vinsamlegast sýnið biðlund

    Það er álag á símkerfi félagsins þar sem margir eru að forvitnast um úthlutun sína. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að sýna biðlund þar til póstur berst.[+]

  • 02. febrúar 2012

    Íslensku hrosshárin slógu í gegn

    Á dögunum fór fram The Fly Fishing Show í New Jersey. Sýning þessi er ein stærsta sýning um fluguveiði í heiminum og fer fram á ólíkum tíma á sjö stöðum í...[+]

american-express
     
    Icelandic English Spanish German French