07. September 2010

Uppskeruhátið stangaveiðimanna

Þann 22. október næstkomandi er stefnt að allsherjar uppskeruhátið stangaveiðimanna í Gullhömrum. Verðu þar slegið upp veislu í tilefni vertíðarloka.

Það eru félagar í skemmtinefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem vinna að undirbúningi þessa atburðar og er meiningin að virkja hina ýmsu stangaveiðifélög og veiðiklúbba til þess að koma og skemmta sér saman.
Í boði berður þriggja rétta matseðill á vægu verði,söng- og skemmtiatriði, happadrætti og fleira skemmtilegt.
Í lok kvöldsins verður síðan slegið upp allsherjar dansleik.

Við hvetjum stangaveiðimenn til þess að taka kvöldið frá, en dagskrá verður auglýst síðar.

  • 03. febrúar 2012

    Minnum á Opna húsið í kvöld

    Við minnum á að fyrsta skemmtikvöld nýs árs er í kvöld, föstudaginn 3. febrúar. Sem fyrr fer gleðin fram í sal Stangaveiðifélags Reykjavíkur að Háaleitisbraut...[+]

  • 02. febrúar 2012

    Vinsamlegast sýnið biðlund

    Það er álag á símkerfi félagsins þar sem margir eru að forvitnast um úthlutun sína. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að sýna biðlund þar til póstur berst.[+]

  • 02. febrúar 2012

    Íslensku hrosshárin slógu í gegn

    Á dögunum fór fram The Fly Fishing Show í New Jersey. Sýning þessi er ein stærsta sýning um fluguveiði í heiminum og fer fram á ólíkum tíma á sjö stöðum í...[+]

american-express
     
    Icelandic English Spanish German French