LÖG 
STANGAVEIÐIFÉLAGS REYKJAVÍKUR 


Samþykkt á aðalfundi félagsins 26. nóvember 2005. 



Nafn og heimili 1. gr. 
Nafn félagsins er Stangaveiðifélag Reykjavíkur, skammstafað SVFR, og er heimilisfang þess í Reykjavík. 


Tilgangur 2. gr.
Tilgangur félagsins er: 
-Að útvega félagsmönnum veiðileyfi og taka í því skyni veiðivötn á leigu eða kaupa veiðisvæði og annast umboðssölu á veiðileyfum. 
-Að efla hróður stangaveiði með almennri fræðslu um íþróttina, með því að hvetja til hófsemi í veiði og stuðla að því að veiðimenn virði settar veiðireglur og umgangist náttúruna af virðingu og tillitssemi. 
-Að styrkja stöðu stangaveiði sem almennings- og fjölskylduíþróttar. 
-Að efla áhuga barna og unglinga á stangaveiði, m.a. með kennslu í veiðileikni í ám og vötnum og hvers konar fræðslustarfi. 
-Að vinna að samstöðu stangaveiðimanna og standa vörð um rétt þeirra og hagsmuni. 
-Að stuðla að góðri samvinnu við veiðiréttareigendur og standa fyrir, ásamt þeim, umbótum á veiðisvæðum sem félagið hefur til umráða. 


Félagsaðild 3. gr
Félagsmenn geta þeir orðið sem eru íslenskir ríkisborgarar eða eiga lögheimili á Íslandi, enda sé inngöngubeiðni þeirra samþykkt af stjórn félagsins eða með meirihluta atkvæða á aðalfundi 


Gjöld 4. gr. 
Árgjald félagsmanna er ákveðið á aðalfundi. Gjalddagi þess er 1. desember og greiðist þá gjald fyrir það ár sem í hönd fer. Auk árgjalds skal hver nýr félagsmaður greiða inntökugjald. Upphæð þess er ákveðin á aðalfundi. 
Nýir félagsmenn skulu fyrst greiða árgjald á því ári sem þeim býðst úthlutun veiðileyfa. 
Inntöku- og árgjöld þeirra sem eru 67 ára og eldri, barna og unglinga yngri en 18 ára og maka félagsmanna skulu vera að hámarki 50% af fullum gjöldum. 
Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skal stjórn félagsins, er þrír mánuðir eru liðnir frá gjalddaga síðasta árgjalds, tilkynna honum að hann verði felldur af félagaskrá standi hann ekki skil á vangoldnum gjöldum til félagsins innan eins mánaðar. 
Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg. 


Eignir og ábyrgð 5. gr. 
Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af eignum félagsins þótt hann hverfi úr því eða félaginu sé slitið. 
Enginn félagsmaður ber ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum félagsins með öðru en félagsgjöldum sínum. 

Stjórn og stjórnarkosning 6. gr. 
Stjórn félagsins skipa sex menn auk formanns. Framboðum til stjórnar skal skila skriflega til skrifstofu félagsins eigi síðar en fjórtán dögum fyrir aðalfund og skulu nöfn frambjóðenda birt í aðalfundarboði. 
Formaður skal kosinn til eins árs en aðrir stjórnarmenn til tveggja ára, þó þannig að á hverju ári sé kosið um þrjá meðstjórnendur. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. 
Stjórnarkosning fer fram á aðalfundi og skal kosið skriflega, bundinni kosningu milli frambjóðenda. Atkvæðaseðill við kjör meðstjórnenda er því aðeins gildur að á hann séu rituð þrjú nöfn. Ef kjósa þarf meðstjórnendur til eins árs má fjölga nöfnum á atkvæðaseðli sem því nemur. Þeir þrír sem flest atkvæði hljóta eru kjörnir til tveggja ára. Allir skuldlausir félagsmenn 18 ára og eldri eru kjörgengir til stjórnarkjörs. 



Stjórn og stjórnarkosning 6. gr. frh. 
Kjörgengir félagsmenn, sbr. 3 gr. geta kosið formann og aðra stjórnarmenn, sbr. 2 mgr. utan aðalfundur og skal sú kosning fara fram á skrifstofu félagsins síðustu fimm virka daga fyrir aðalfund. Stjórn félagsins gefur út nánari reglur um kjörgögn og fyrirkomulag kosninga samkvæmt þessari málsgrein. 
Stjórnarfundir skulu haldnir reglulega samkvæmt boðun formanns eða fjögurra stjórnarmenn. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum. 
Stjórnarfundur er löglegur ef fjórir stjórnarmenn eru mættir, þar af formaður eða varaformaður. 


Aðalfundur 7. gr
Aðalfundur hefur æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum félagsins. Á honum fer fram kosning stjórnar, tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara, svo og kosning fulltrúaráðs. 
Allir skuldlausir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi en atkvæðisrétt hafa einungis félagsmenn 18 ára og eldri. 
Aukaaðalfund er heimilt að halda telji meirihluti stjórnar og fulltrúaráðs nauðsyn bera til. Aukaaðalfundur er boðaður á sama hátt og aðalfundur og hefur sama vald og aðalfundur. 
Aðalfund skal halda um síðustu helgi í nóvember ár hvert. Stjórnin boðar til fundarins með a.m.k. sjö daga fyrirvara, bréflega eða með auglýsingu í dagblaði, eða með tryggum rafrænum hætti. 
Aðalfundur telst lögmætur sé löglega til hans boðað. 
Tillögum til lagabreytinga skal skila skriflega á skrifstofu SVFR a.m.k. fjórtán dögum fyrir aðalfund og skal þeirra getið í aðalfundarboði. Ekki verða greidd atvæði um aðrar tillögur til lagabreytinga en þær sem getið er í fundarboði og breytingartillögur við þær. 
Á aðalfundi skal stjórn skýra frá starfsemi félagsins á liðnu starfsári og leggja fram endurskoðaða reikninga sem félagsmönnum hafa verið aðgengilegir á skrifstofu félagsins í sjö daga fyrir fundinn. 


Félagsfundir 8. gr. 
Til almennra félagsfunda skal stjórn boða þegar þörf þykir. Einnig skal boða til almenns félagsfundar ef minnst 100 félagsmenn óska þess skriflega og eftir ákvörðun fulltrúaráðs samkvæmt 9. grein. 
Félagsfund skal boða með a.m.k. fimm daga fyrirvara, bréflega eða með auglýsingu í fjölmiðli eða með tryggum rafrænum hætti. Á félagsfundum má gera ályktanir, samþykkja áskoranir til stjórnar o.fl. en ekki afgreiða nein mál sem samkvæmt lögum þessum heyra undir aðalfund. 


Fulltrúaráð 9. gr. 
Á aðalfundi skal kjósa félaginu fulltrúaráð. Í því skulu sitja fimmtán menn, þar af fimm síðast starfandi formenn félagsins, njóti þeirra við, og eru þeir sjálfkjörnir. Fráfarandi formaður félagsins er formaður fulltrúaráðs. 
Í fulltrúaráð skal því kjósa a.m.k. tíu fulltrúa til tveggja ára, þó þannig að á hverju ári skal kosið um a.m.k. fimm fulltrúa. Framboðum til fulltrúaráðs skal skila skriflega til skrifstofu félagsins a.m.k. fjórtán dögum fyrir aðalfund og skal þeirra getið í aðalfundarboði. 
Hlutverk fulltrúaráðs er fyrst og fremst að vera stjórn félagsins til fulltingis og ráðuneytis í málefnum félagsins. Fulltrúaráð hefur engin afskipti af daglegum rekstri félagsins. 
Formaður fulltrúaráðs getur kvatt ráðið saman þegar honum þykir nauðsyn bera til. Honum er skylt að kveðja ráðið til fundar ef stjórn félagsins eða fimm fulltrúaráðsmenn óska þess skriflega og gera grein fyrir fundarefni. 
Fulltrúaráðsfundur er ályktunarbær ef meirihluti fulltrúaráðsmanna er mættur og a.m.k. 2/3 þeirra eru sammála um afgreiðslu mála, þ.m.t. um að boða til almenns félagsfundar. 




Verkefni stjórnar, starfsfólk og nefndir 10. gr. 
Stjórn hefur á hendi allar framkvæmdir félagsins milli aðalfunda. Hún sér um útvegun veiðiréttinda og gerir samninga um þau í umboði félagsins. Stjórn upplýsir þó fulltrúaráð um öll meiriháttar fjárhagsmál og samninga til langs tíma. 
Stjórn útbýr úthlutunarreglur veiðileyfa og kynnir þær árlega í söluskrá félagsins. Stjórn annast úthlutun veiðileyfa, ákveður verð á þeim og setur veiðiregur fyrir einstök veiðisvæði. Félagsmenn skulu sitja fyrir um veiðileyfi, en heimilt er þó að selja þau öðrum en félagsmönnum ef það fer ekki í bága við hagsmuni félagsins að mati stjórnar. 
Stjórn ræður framkvæmdarstjóra til að annast daglegan rekstur félagsins undir umsjón stjórnar, svo og annað starfslið eftir því sem þurfa þykir. Stjórn ákveður launakjör framkvæmdastjóra og annars starfsliðs. 
Stjórn skipar fastanefndir, umsjónarnefndir með veiðisvæðum félagsins og aðrar nefndir eftir því sem hún telur nauðsynlegt og setur þeim starfsreglur. Nefndir skulu skila stjórn skýrslum um störf sín fjórtán dögum fyrir aðalfund. 


Boð í veiðivatn 11. gr. 
Það stríðir gegn hagsmunum félagsins að félagsmaður, í eigin nafni eða annarra, bjóði gegn félaginu í veiðivatn sem félagið hefur samning um eða hyggst endurnýja samning um, hvort sem það er leigusamningur, umboðssölusamningur eða annars konar samningur um sölu veiðileyfa. 


Viðurlög við brotum á lögum og reglum 12. gr. 
Brjóti félagsmaður gegn lögum þessum, veiðireglum í veiðivötnum félagsins eða hagsmunum félagsins að öðru leyti, getur það varðað brottrekstri úr félaginu. Brot á veiðireglum einstaka veiðivatns geta einnig varðað útilokun eða sviptingu veiðiréttar í því veiðivatni og eftir atvikum fleiri veiðivötnum. 
Stjórn félagsins ákveður viðurlög við brotum á lögum þessum. Sameiginlegur fundur stjórnar og fulltrúaráðs skal þó taka ákvörðun um brottrekstur félagsmanns. 
Brottreknum félagsmanni er heimilt að sækja um inngöngu í félagið á ný, en þá skal hann greiða inntökugjald á ný auk eldri skulda. 


Tímarít 13. gr. 
Félagið stendur fyrir útgáfu tímarits er nefnist Veiðimaðurinn og er áskrift að blaðinu innifalin í árgjaldi félagsmanns eftir ákvörðun aðalfundar. 


Lagabreytingar 14. gr. 
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með 2/3 hlutum atkvæða hið minnsta, sbr. einnig 6. mgr. 7. gr. 


Félagsslit 15. gr. 
Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi og með samþykki meirihluta allra félagsmanna, sbr. einnig 1. mgr 5. gr.
 
Icelandic English Spanish German French