Ásgaður – Fornfrægt stórlaxasvæði

Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg. Þeir eru ófáir veiðimennirnir sem lent hafa í ævintýralegum glímum við stóra laxa fyrir landi Ásgarðs í Soginu. Sogið er fornfrægt fyrir stóra laxa og minnir af og til á þá staðreynd. Veiðisvæðið fyrir landi Ásgarðs er þéttskipað kyngimögnuðum veiðistöðum og má í því sambandi sérstaklega nefna veiðistaðinn Ystunöf sem er úti í miðri ánni, beint fyrir ofan djúpa gjá, en þar er eins gott að kunna fótum sínum forráð. Fyrir Ásgarðslandi, sem annars staðar í Soginu, eru aðstæður til fluguveiða eins og þær gerast bestar. Á veiðisvæðinu er einnig talsvert af bleikju og getur hún verið stór eins og á öðrum svæðum í Soginu. Sumarið 2009 var gott veiðisumar í Soginu en þá veiddust 718 laxar. Á svæði Ásgarðs veiddust 247 laxar, sem er mesta veiði á því svæði í fjölda ára.
Athugið að í stað veiða/sleppa reglu í september hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Einnig eru veiðimenn minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.
Sog Ásgarður - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Suðurland, u.þ.b. 50 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði:Veiðisvæðið í Ásgarðslandi er austurbakki Sogs, frá Markalæk niður að veiðimerki í vík neðan veiðihúss. Veiðimenn eru minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.
Tímabil:20.6 til 24.9.
Veiðileyfi:Einn eða fleiri dagar í senn.
Daglegur veiðitími:Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 7-13 og 16-22. Eftir 14. ágúst er veitt á seinni vaktinni frá kl. 15-21.
Fjöldi stanga:3.
Leyfilegt agn:Maðkur, fluga, spónn. Fluga, maðkur og spónn. Athugið að eftir 1. september er tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng.
Vinsælar flugur:Rauð og Svört Frances, Snælda.
Veiði síðastliðið ár:316 laxar sumarið 2010 á svæði Ásgarðs
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðileyfum á Ásgarðssvæðinu fylgja afnot af glæsilegu 100m2 veiðihúsi sem staðsett á svonefndum Gíbraltarhöfða. Þaðan er einstakt útsýni yfir veiðisvæðið og sveitina í kring. Í húsinu eru þrjú tveggja manna svefnherbergi, öll með snyrtingu. Þá er í húsinu gufubað, heitur pottur, steypibað og öll helstu þægindi. Veiðimenn leggja sjálfir til mat, allar hreinlætisvörur, rúmföt og handklæði. Sængur og koddar eru á staðnum. Gasgrill er við húsið.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Beygt er til vinstri skömmu eftir að ekið hefur verið yfir brúna hjá Þrastarlundi (vegur 36). Ekið upp Grímsnesveg (beygt inn hjá skilti sem á stendur Skjólborgir) (leið 36) u.þ.b. 3 km og beygt til vinstri. Þaðan er ekið niður í átt að ánni uns vegur skiptist í tvennt. Ekið er til hægri á þessum vegamótum (norður) og vegi fylgt uns húsið blasir við. Þess skal getið að vegur hefur verið lagður upp með ánni langleiðina að Ásarðslæk. Þetta auðveldar mjög aðgang að veiðisvæðinu.
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French