Fnjóská – Falleg laxveiðiá í Þingeyjarsýslu

Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur Fnjóská á leigu í samstarfi við Stangaveiðifélagið Flúðir á Akureyri. SVFR er með fjórðung stangardaga í Fnjóská og er veiðisvæðið um 50 kílómetrar að lengd. Fjölmargir fallegir og fjölbreyttir veiðistaðir eru í Fnjóská og hentar hún einkar vel til fluguveiða. Á það við um mið og efri hluti árinnar þar sem finna má margar glæsilegar breiður. Veiðifélagið Flúðir og landeigendur standa fyrir öflugu ræktunarstarfi, sem væntanlega mun skila sér í mun betri veiði á næstu árum. Fnjóská er því afar spennandi og vekja má athygli á mjög hárri meðalþyngd laxa úr ánni, eða um fjögur kíló. Sumarið 2010 varð metveiði í Fnjóská og nam sumarveiðin 1.054 löxum!
Þingeyjarsýsla, um 40 km. norður af Akureyri
Fnjóská - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Þingeyjarsýsla, um 40 km. norður af Akureyri
Veiðisvæði:Laxveiðisvæði árinnar nær frá ósum og nokkuð upp fyrir brúna á þjóðvegi 1 við Vaglaskóg. Svæðinu er skipt í fjögur veiðisvæði og veiða tvær stangir á hverju svæði. Veitt er í hálfan dag á hverju svæði og veiða menn því alla ána á tveim dögum.
Tímabil:18. júní til 16. september
Veiðileyfi:Veitt er í tvo daga í senn frá hádegi til hádegis. Hámarksveiði er þrír laxar á stöng á hálfum degi.
Daglegur veiðitími:Frá 18/6 - 13/8 er veitt frá kl. 7-13 og 16-22, en eftir það frá kl. 7-13 og 15-21.
Fjöldi stanga:8.
Leyfilegt agn:Fluga, maðkur og spónn á svæði 1 allt sumarið og í júní og júlí á svæðum 2, 3 og 4. Í ágúst og september er aðeins leyft að veiða á flugu á svæðum 2, 3 og 4.
Vinsælar flugur:Frances, Snælda, Blue Charm, Collie Dog, Black Sheep,
Veiði síðastliðið ár:1.054 laxar sumarið 2010
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihúsið er hvítt tveggja hæða reisulegt hús með rauðu þaki í landi Skarðs austan árinnar á mörkum 1. og 2. veiðisvæðis. Aðstaða veiðimanna er á neðri hæðinni sem er nýstandsett. Í húsinu eru fimm svefnherbergi með 12 rúmum, snyrtingu með steypibaði. Einnig eru í húsinu baðherbergi, fullbúið eldhús, borð- og setustofa með sjónvarpi og myndbandstæki.Veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað og handklæði og ber að þrífa húsið vel fyrir brottför.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Ekinn er þjóðvegur 1 frá Akureyri til austurs þar til komið er að brúnni yfir Fnjóská rétt neðan við Vaglaskóg. Farið er yfir brúna og stuttu síðar beygt til vinstri inn á veg 835, sem liggur niður Fnjóskadal til Grenivíkur. Skarð er á hægri hönd um 20 km. frá þessum vegamótum.

Annað

Nánari upplýsingar má fá um Fnjóská á heimasíðu Flúða:

Heimasíða Flúða
"Fnjóská er ekki allra. Stríð og vatnsmikil streymir hún fram, torræð og ögrandi. Silfurslóð eftir endilöngum dal. Heil mannsævi nægði ekki til að kynnast henni til fulls. En þegar hún opinberar leyndardóma sína er eins og birtu bregði á umhverfið." Gylfi Pálsson
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French