tGljúfurá í Húnaþingi
Gljúfurá í Húnaþingi
Áin vekur athygli þegar keyrt er yfir hana á þjóðvegi 1.
Í Gljúfurá er leyft að veiða á 2 stangir og eru þær seldar saman. Áin er laxveiðiá en töluverð bleikjuveiði er neðst í ánni. Nokkuð hár meðalþungi er á laxinum í Gljúfurá og þar hafa veiðst sannkallaðir stórlaxar. Veiðisvæði árinnar hefur verið lengt með fiskvegagerð og spannar nú 10 km. þannig að ekki væsir um stangirnar tvær.
| Gljúfurá í Húnaþingi - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Húnavatnssýsla, milli Víðidals og Vatnsdals. |
| Veiðisvæði: | Áin öll og spannar svæðið hátt í 10 km. Aðgengi er mjög gott og fólksbílafært er með ánni |
| Tímabil: | 1. júlí til 20. september. |
| Veiðileyfi: | Veitt er í tvo daga í senn og eru stangirnar tvær seldar saman |
| Daglegur veiðitími: | 7-13 og 16-22 frá 1. júlí – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur (sjá nánar undir veiðireglur). |
| Vinsælar flugur: | Frances, Snælda, Blue Charm, Hairy Mary, Collie Dog, Black Sheep. |
| Veiði síðastliðið ár: | 120 laxar |
| Umsjónaraðili: | Jón Þór Júlíusson, sími 898 2230 |
|
Veiðihús
Nýtt 55fm veiðihús er staðsett við Gljúfurá. Húsið er með fjórum tveggja manna herbergjum. Veiðimenn leggja sjálfir til hreinlætisvörur og sængurver.Veiðimenn mega koma í húsið klukkustund áður en veiði hefst og skulu hafa rýmt herbergi sín klukkustundu eftir að veiði .
Veiðibókin er í veiðihúsinu.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekinn er þjóðvegur 1 í átt að Blönduósi uns komið er að Gljúfurá mitt á milli Víðidals og Vatnsdals. Eftir að komið er yfir brúna yfir Gljúfurá liggur vegur niður með ánni og blasir veiðhúsið við.Annað
Gljúfurá er lítil og nett veiðiá. Ef góður árangur á að nást þarf að fara að ánni með varúð.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu