Grjótá og Tálmi

Áin Grjótá fellur í Tálma sem fellur síðan í Hítará rétt ofan Langadráttar. Náttúrufegurð er mikil á svæðinu og þarna er að finna marga veiðistaði sem henta vel fyrir alla fjölskylduna en þess ber að geta að landið getur reynst erfitt yfirferðar ungum börnum.
Grjótá og Tálmi - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Grjótá og Tálmi renna í Hítará að austanverðu rétt fyrir ofan þjóðveginn.
Veiðisvæði:Tálmi niður að ármótum Melsár og Grjótá öll að efstu tveimur veiðistöðunum undanskyldum. Gott veiðikort má prenta út af vef SVFR. Athugið að tveir efstu veiðistaðirnir í Grjótá, 31 og 32, eru friðaðir.
Tímabil:18 júní til 20. september
Veiðileyfi:Tveggja daga holl frá hádegi til hádegis, frá upphafi veiðitíma til 18. júní til 20. september. Veitt er á tvær stangir allt veiðitímabilið og eru stangirnar ávallt seldar saman.
Daglegur veiðitími:Kl. 7.00–13.00 og 15.00–21.00 daglega.
Fjöldi stanga:2
Leyfilegt agn:Fluga og maðkur.
Vinsælar flugur:
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Ágætt veiðihús er á svæðinu. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi. Í því er rafmagn, gasgrill og helstu þægindi sem veiðimenn kjósa. Sængur og koddar eru í húsinu en veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað og allar hreinlætisvörur. Þegar seldir eru stakir dagar frá morgni til kvölds mega veiðimenn koma í húsið klukkustund eftir að veiðitíma lýkur daginn fyrir veiðidag og ber að rýma það á sama tíma brottfarardag. Þegar seld eru 2ja daga holl frá hádegi til hádegis mega veiðimenn koma í hús klukkustund áður en veiði hefst. Þrífa ber veiðihúsið fyrir brottför.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Ekið er út af þjóðveginum vestur á Snæfellsnes sunnan Hítarár og haldið upp eftir vegi 539. Ekið er yfir brúna á Grjótá og er húsið þá á hægri hönd.

Annað

Tveir efstu veiðistaðirnir í Grjótá voru friðaðir árin 2010 og 2011. Svo verður einnig á árinu 2012. EKKI er heimilt að veiða á svæðinu fyrir ofan Kattarfoss, það tilheyrir nú Hítará I. Munið að skrá alla veiði í bók sem liggur frammi í veiðihúsinu.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French