tHróarslækur – Frábær aðstaða
Hróarslækur
Hróarslækur rennur í Ytri-Rangá austan frá, neðan við Hellu. Margir gefa ánni gaum þegar komið er fram hjá Hellu enda um töluvert vatnsfall að ræða. Hróarslækur er lindá og heldur jöfnu vatni yfir veiðitímann.
Í Hróarslæk veiðist bæði lax og staðbundinn silungur auk þess sem mjög vænar sjóbleikjur hafa veiðst í ánni. Leyfðar eru fjórar stangir við veiðarnar og fylgir frábært veiðihús leyfunum þar sem öll aðstaða er fyrsta flokks. Allar fjórar stangirnar eru seldar saman. Um 60.000 laxaseiðum var sleppt í ánna síðastliðið vor sem eiga að skila sér sem smálax sumarið 2010. Sumarið 2009 veiddust rösklega 400 laxar víðsvegar um ánna.
| Hróarslækur - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Hella |
| Veiðisvæði: | Öll áin þar með talinn ós Hróarslækjar og Rangár. Áin er um 8 km löng. |
| Tímabil: | 19/7 - 10/10 |
| Veiðileyfi: | Tveir dagar í senn frá hádegi til hádegis |
| Daglegur veiðitími: | Daglegur veiðitími: 17. júlí – 10. ágúst kl. 7-13 og 16-22 daglega, 11. ágúst – 10. október kl. 7-13 og 15-21.Undir lok veiðitímans má veiða frá klukkan 08.00 - 20.00. |
| Fjöldi stanga: | 4 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur og spónn |
| Vinsælar flugur: | Rauð og svört Frances, Blue Charm, Snælda |
| Veiði síðastliðið ár: | 400 laxar sumarið 2009 |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Nýtt og glæsilegt veiðihús er á fallegum stað ofan til við ána. Húsið er staðsett ofan þjóðvegar ca. 5 km. upp afleggjarann að Gunnarsholti.
Veiðihúsið rúmar allt að 12 manns í svefnpláss í 6 rúmgóðum herbergjum þar af 2 hjónasvítum. Heitur pottur er á verönd og sjónvarp í öllum herbergjum. Hér er allt eins og best verður á kosið Fara efst á síðu