tKorpa/Úlfarsá
Úlfarsá Korpa
Úlfarsá er frábær laxveiðiá í fögru umhverfi í landi Reykjavíkur. Úlfarsá fellur úr Hafravatni og liðast 7 km. löng um láglendið milli Úlfarsfells og Keldnaholts. Áin er tveggja stanga og hentar vel fyrir veiði bæði með maðk og flugu.
Veiðistaðir eru margir og fjölbreyttir og mikil vinna hefur verið lögð í að undanförnu að bæta þá og fjölga. Lagfæring veiðistaða gerir ána mun auðveldari til fluguveiða. Lokun á vatnstöku Áburðarverksmiðjunar hefur góð áhrif á laxgengd og veiði í ánni. Þegar veitt er Korpu verður að fara varlega. Korpa er sjálfbær laxveiðiá og er það næstum einsdæmi á Íslandi í dag. Þessi litla og friðsæla á er með gjöfulustu laxveiðiá landsins ef miðað er við veiði á stangardag. Kvóti er fjórir laxar á dag á hverja dagsstöng. Áin er algjörlega sjálfbær og engar seiðasleppingar fara þar fram sem er einsdæmi hérlendis. Skylt er að taka hreistursýni af hverjum veiddum fiski.
| Úlfarsá Korpa - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Úlfarsá fellur úr Hafravatni og liðast 7 km. löng um láglendið milli Úlfarsfells og Keldnaholts. Svæði I er Sjávarfoss, Pallur og Neðri Rennur. Svæði II er Berghylur, Foss og Efri Rennur. Kolla er næsti veiðistaður fyrir ofan Efri Rennur, þar byrjar frísvæði sem nær yfir aðra hluta árinnar. |
| Tímabil: | 20. júní til 9. september. |
| Veiðileyfi: | Einn dagur í senn frá morgni til kvölds. |
| Daglegur veiðitími: | Daglegur veiðitími: 20. júní – 10. ágúst kl. 7-13 og 16-22 daglega, 11. ágúst – 9. september kl. 7-13 og 15-21. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur. Kvóti er fjórir laxar á hverja dagsstöng. |
| Vinsælar flugur: | Rauð og svört Frances, Blue Charm, Snælda og ýmsar gárutúpur. |
| Veiði síðastliðið ár: | Um 300 laxar |
| Umsjónaraðili: | Júlíus Þór Jónsson sími 892-9263 og Jón Þór Júlíusson, sími 898-2230. |
|
Veiðihús
Veiðihúsið í Korpu er lítið og þægilegt og er þar aðstaða til hvíldar og hressingar. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Veiðihúsið er staðsett við Blikastaðakró. Ekið er sem leið liggur upp Víkurveg, síðan Korpúlfsstaðaveg framhjá Korpúlfsstöðum og Barðastaðir eknir niður að ósi árinnar, þar sem veiðihúsið er. Annað
Veiðimönnum er skylt að mæta í veiðihúsið að morgni veiðidags og framvísa þar veiðileyfi sínu.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortNá í kortNá í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu