tLaxá í Dölum
Laxá í Dölum
Laxá í Dölum er án efa ein fallegasta laxveiðiáin hérlendis og eftirsótt meðal veiðimanna. Í Laxá er veitt á sex dagstangir og er meðalveiði síðastliðinna fimm ára 1540 laxar á sumri. Óvíða er því að finna meiri meðalveiði á hverja dagstöng. Laxá er rómuð fyrir miklar aflahrotur í vætutíð en þegar þurkar geisa getur reynt á veiðimanninn. Aðkoma að veiðistöðum er góð og er áin einstaklega þæginleg til að veiða á þeim 25 kílómetra kafla sem hún er laxgeng. Við Þrándargil er gott veiðihús með helstu þægindum. Þar geta veiðimenn séð niður á hinn margrómaða veiðistað Kristnapoll. Sumarið 2010 veiddust 1762 laxar í Laxá.
Veitt er frá hádegi til hádegis með 6 stöngum og er kvóti tíu laxar á dag-fimm laxar á hverja stöng á vakt. Óheimilt er að færa kvóta á milli dagsparta nema á heilum dögum þegar kvóti er tíu laxar á dag. ATH: Brot á veiðireglum geta varðað brottvikningu af veiðislóð.| Laxá í Dölum - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Vesturland, 150 km að veiðihúsi. |
| Veiðisvæði: | Frá ósi upp að Sólheimafossi. Ánni er skipt í þrjú tveggja stanga veiðisvæði. |
| Tímabil: | 28. júní til 28. september |
| Veiðileyfi: | Tveir og þrír dagar í senn, frá hádegi til hádegis. |
| Daglegur veiðitími: | Kl. 7-13 og 16-22 . Eftir 14. ágúst er veiðitíminn frá 7-13 og 15-21. Á brottfaradegi lýkur veiði klukkan 12.30 en veiði er heimil til 13.00 séu veiðimenn búnir að tæma herbergi sín fyrir hádegi. |
| Fjöldi stanga: | 6 |
| Leyfilegt agn: | Fram til 17.ágúst er veitt eingöngu með flugu en frá hádegi 17.ágúst er veitt með flugu og maðki. Vakin er athygli á því að á fluguveiðitíma skal nota flugustangir með fluguhjólum en ekki kaststangir. |
| Vinsælar flugur: | Svört Frances, Blue Charm, Gáru-túpa. |
| Veiði síðastliðið ár: | 1,762 laxar sumarið 2010 |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Veiðihúsið Þrándargil við Laxá er rúmgott og þæginlegt. Tímabilið 28.júní-12 júlí og 10. september - 28. september verður fæðisverð kr.10.900 á mann (séu veiðimenn einir á stöng er verð fyrir fæði og gistingu 3.000 kr. hærra). Á öðrum tíma er fæðisverð kr. 19.500 á mann. Innifalið í húsgjaldi er uppábúið rúm. Veiðimenn mega koma í húsið einni klst. eftir að veiðitíma líkur. Í veiðihúsinu mega dveljast tveir fyrir hvert selt leyfi.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Frá Reykjavík eru um 150 km að veiðihúsi. Ekinn er þjóðvegur nr.1 umHvalfjarðargöng, Borgarnes,Norðurádal,beygt inn á Vestfjarðaveg nr.60 við Bröttubrekku, nokkru áður en komið er að Búðardal er ekið inn á Laxárdalsveg nr.59 og áleiðis inn dalinn, fram hjá bænum Leiðólfsstöðum og er veiðihúsið í þrándargili næsta hús á hægri hönd.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortNá í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu