Laxá í Kjós

Laxá í Kjós og Bugða hafa um langt árabil verið með bestu laxveiðiám landsins. Náttúrufegurð er mikil í Kjósinni og fjöldi fallegra veiðistaða. Veiðisvæðið er um 25 km langt með yfir 100 merkta veiðistaði. Aðgengið að ánni er þægilegt og nægir 4 x 4 fólksbíll fyllilega til að athafna sig á bökkum Laxár í Kjós. Í Laxá í Kjós og Bugðu veiddust 1.404 laxar sumarið 2009 og var síðsumarsveiðin í ánni mjög góð eins og mörg undanfarin ár en hafa ber í huga að maðkur er ekki leyfður að hausti til, eða eftir 6. júlí. Kjósin er skemmtileg fluguveiðiá og flesta veiðistaði má veiða með einhendu. Veiðimenn munu gista nýju, glæsilegu veiðihúsi auk þess sem veiðitími hefur verið færður aftur svo um munar því nú opnar Kjósin ekki fyrr en 25. júní. Hausttíminn í Laxá og Bugðu er nú orðinn ákaflega álitlegur, en breytt veiðitilhögun eykur nú veiðina síðsumars. Athugið að í Bugðu skal öllum laxi sleppt.
Laxá í Kjós - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Hvalfjörður, um 50 km frá Reykjavík
Veiðisvæði:Veiðisvæðið í Laxá nær frá Skugga að ofanverðu niður að brúnni fyrir neðan Kvíslafoss auk Bugðu. Athugið í vorveiðinni er leyfð veiði neðan brúar í svokölluðum Höklum samkvæmt nánari útskýringu í söluskrá.
Tímabil:25. júní til 25. september
Veiðileyfi:Frá 26/6 - 30/6 er áin seld í tveggja daga hollum. Frá 30/6 til 14/8 er áin seld í þriggja daga hollum. Frá 14/8 til 15/9 er áin seld í tveggja daga hollum. Frá 15-25. september eru svo seldir stakir dagar og stöngum fækkað í 8.
Daglegur veiðitími:Veiðitími er frá 7-13 og 15-21. Breyta má hvíldartíma ef allir veiðileyfishafar eru því sammála. Athugið að á skiptidögum er veiði hætt klukkan 12.30.
Fjöldi stanga:10 stangir, þó aðeins 8 stangir á tímabilinu 15. september til 25. september.
Leyfilegt agn:Fluga og maðkur nema á miðsvæðinu (Stekkjarneshylur - Káranesfljót) og í Bugðu en þar er eingöngu leyft að veiða á flugu. Á tímabilinu 6. júlí og út veiðitímann er eingöngu heimilt að veiða á flugu
Vinsælar flugur:Svört Frances, ýmsar gáruhnútstúpur, Stekkur Blá, Black & Blue, Green Brahan, Collie Dog.
Veiði síðastliðið ár: 1.404 laxar auk einhverra hundruða sjóbirtinga.
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihúsið í Kjósinni er í alla staði stórglæsilegt. Í veiðihúsinu eru 12 tveggja manna herbergi, auk setustofu og vöðlu/laxageymslu. Skyldufæði er í húsinu allan laxveiðitímann. Verð fyrir fæði og gistingu er kr. 16.900 fyrir manninn á dag, miðað við að tveir séu á stöng. Séu veiðimenn einir á stöng er verð fyrir fæði og gistingu 3.000kr. hærra. Sími í veiðihúsi er 5666004,


Leiðarlýsing að veiðihúsi

Leiðarlýsing að veiðihúsi:Frá Reykjavík er ekinn þjóðvegur 1 (Vesturlandsvegur) í átt að Hvalfjarðargöngum. Stuttu áður en komið er að göngunum er beygt til hægri og ekið inn Hvalfjörð þar til komið er að brúnni yfir Laxá í Kjós. Ekið er yfir brúna, beygt strax til hægri og ekinn um 1 kílómeter og er þá komið að veiðihúsinu á hægri hönd.

Annað

Tveir veiðimenn mega vera saman um stöng. Veiði er bönnuð í kerinu undir laxastiganum, svo og fyrir ofan veiðistað númer 71 (Skuggi). Frá hádegi 6. júlí og út veiðitímann er eingöngu heimil fluguveiði. Á tímabilinu frá hádegi 26/6 til hádegis 30/6 verður heimilt að veiða í Höklunum fyrir neðan brúna á þjóðveginum. Í Bugðu skal öllum laxi sleppt aftur í ána. Á fluguveiðitíma og á fluguveiðisvæðum skal aðeins veitt með hefðbundnum flugustöngum.

Vöð á ánni geta breytt sér og verið varasöm í vatnavöxtum. Vinsamlegast akið ekki utan vega og gangið snyrtilega um árbakkana.
Kvóti á veiðinni er 4 laxar á dag.

"Laxá í Kjós er í senn gjafmild og dutlungafull en fyrst og fremst krefjandi áskorun fyrir þá sem kjósa að veiða á flugu. Veiðistaðirnir eru allt frá stríðum strengjum til lygnra breiða þar sem beita þarf túpum, smáflugum, gáruhnútsbragðinu og öllu litrófi fluguveiðinnar. Það er ekki vandalaust að ná tökum á Laxá í Kjós en þegar því takmarki er náð er hægt að veiða flestar hérlendar ár án teljandi vandræða." Ásbjörn Morthens
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French