Laxá í Aðaldal - Nessvæði

Veiðisvæðin í Laxá í Aðaldal, sem hafa verið nefnd Nesveiðar einu nafni, eru gríðarlega vinsæl og undanfarin ár hafa veiðileyfi sem næst selst upp. Það skal engan undra því hvergi á landinu veiðast fleiri laxar, tuttugu pund og stærri, en á þessu gríðarfallega veiðisvæði. Veiðin á stangirnar átta síðasta sumar voru 360 laxar sem var reyndar nokkur minnkun frá 2010 þegar 580 laxar veiddust á svæðinu. En stórlaxahlutfallið er hátt á þessum slóðum, heil 76%. Að veiða í Laxá í Aðaldal lætur engan ósnortinn og fullyrða fjölmargir veiðimenn að þeir verði aldrei samir eftir að hafa notið hins stórbrotna umhverfis og jafnvel sett í og landað (og sleppt) einum yfir 20 pundin. Staðarleiðsögumaður til aðstoðar veiðimönnum verður á svæðinu.
Laxá í Aðaldal Nes - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Norðurland, c.a 15 mín frá Húsavík.
Veiðisvæði:Veiðisvæðið nær til landamerkja jarðanna Ness og Árness, Knútsstaða, Hólmavaðs og Ytra-Fjalls. Það nær frá og með Laxhólma að ofanverðu að vestan, til og með veiðistaðanna fyrir landi Knútsstaða. Veiðisvæðið er klofið af jörðunum Jarlsstöðum og Tjörn (vesturbakki) og Árbót (austurbakki), en þau svæði fylgja ekki Nesveiðum. Einnig tilheyrir Hrúthólmi, sem er ofan Grástraums, Jarlsstöðum, en Straumeyjar, sem eru fyrir landi Jarlsstaða, tilheyra Nesveiðum. Þar mega veiðimenn veiða úr eyjunum. Austurbakkinn til móts við land Hólmavaðs og Ytra-Fjalls fylgir ekki veiðunum.
Tímabil:1. júlí til 20. september.
Veiðileyfi:Frá hádegi 1. júlí til 20. september eru seldir þrír dagar í senn. Svæðinu er skipt í fjögur veiðisvæði og eru tvær stangir á svæði. Seldar eru 8 stangir á dag.
Daglegur veiðitími:Frá 1.júlí - 15. ágúst frá kl. 07.00 að morgni til kl. 13.00 og frá kl. 16.00 til kl. 22.00, en eftir 15 ágúst er seinni vaktin frá 15.00 til 21.00.
Fjöldi stanga:8
Leyfilegt agn:Eingöngu er leyfð fluga á svæðin og skal laxi sleppt
Vinsælar flugur:Laxá Blá, Bill Young, Frances, Dimmblá.
Veiði síðastliðið ár:584 laxar
Umsjónaraðili:Árni Pétur Hilmarsson, sími 866 3586
mynd af veiðihúsinu

Veiðihús

Veiðiheimilið Árnesi. Þar eru sjö tveggja manna herbergi með baði, auk tveggja eins manns herbergja. Skyldufæði er í húsinu. Veiðimenn mega koma í hús klukkustund áður en veiði hefst og skulu hafa rýmt herbergi sín klukkustund eftir að veiði lýkur á brottfarardag. Verð á fæði og gistingu er kr. 16.500 á mann á dag. Séu veiðimenn einir á stöng er verð fyrir fæði og gistingu 3.000 kr. hærra.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Annað

Rétt er að ítreka það að öllum laxi skal sleppt. Staðarleiðsögumaður verður veiðimönnum innan handar. Bátar eru notaðir á eigin ábyrgð.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French