Leirvogsá

Meðalveiðin í Leirvogsá hefur verið með því mesta sem gerst hérlendis á undanförnum árum eða um þrír laxar á stangardag. Margir fjölbreyttir veiðistaðir prýða þessa fallegu á sem rennur rétt utan við borgarmörkin. Fram á síðustu ár var mest veitt á maðk í Leirvogsá en áin geymir einnig fjölda frábærra fluguveiðistaða. Leirvogsá er dragá með lindarvatnsáhrifum og er vatnasvið hennar um það bil 85 ferkílómetrar. Hún rennur úr Leirvogsvatni og er um það bil 12 kílómetra löng, en fiskgengi hlutinn er um átta kílómetrar og endar undir Tröllafossi. Fyrir utan laxinn er mikið af vænum sjóbirtingi í Leirvogsá.Í Leirvogsá er rúmt um veiðimenn enda aðeins veitt á tvær stangir hverju sinni. Góð veiði hefur verið undanfarin ár, sumarið 2009 veiddust 877 laxar og sumarið 2010 veiddust 559 laxar í Leirvogsá.
Leirvogsá - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Mosfellsbær
Veiðisvæði:Frá 25. júní - 24. júlí er ánni skipt í þrjú veiðisvæði. Svæði I nær frá ósi að og með Sleppitjarnarhyl. Svæði II er frá neðri Skrauta til og með Gundarhorni. Svæði III er frá og með Bakka að Tröllafossi. Frá 25. júlí og út veiðitímann er ánni skipt í tvö svæði. Svæði I nær frá ósi árinnar að og með Seljalandsstreng. Svæði II er frá og með Holu og að Tröllafossi.
Tímabil:25. júní til 19. september
Veiðileyfi:Veitt er einn dag í senn frá morgni til kvölds.
Daglegur veiðitími:25. júní - 4. ágúst kl. 7-13 og kl. 16-22 daglega, 5. ágúst - 4. september kl. 7-13 og 15-21 og 5. september - 19. september kl. 7-13 og 14-20.
Fjöldi stanga:2
Leyfilegt agn:Fluga og maðkur
Vinsælar flugur:Blue Charm, Frances, gáruhnútstúpur og örtúpur.
Veiði síðastliðið ár:777 lax á dagsstangirnar tvær
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihús er í landi Norðurgrafar og er það upphitað og með raflýsingu. Það er gamalt en í ágætu standi, í því er vatnssalerni og eldunaraðstaða. Húsið er opið yfir veiðitímann. Aðgerðar- og vigtunaraðstaða er í gámi á bílaplaninu. Leyfðar eru tvær stangir í ánni og eru þær seldar einn eða fleiri daga í senn frá morgni til kvölds. Veiðimenn eru beðnir um að ganga vel um veiðihúsið, ána og umhverfi hennar, ræsta húsið og gáminn vel fyrir brottför og taka með sér allt rusl. Umsjónarmaður er Viðar Jónasson

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Ekið er sem leið liggur vesturlandsveginn í gegnum Mosfellsbæinn, yfir Leirvogsána og tekinn þriðji afleggjari á hægri hönd í gegnum iðnaðarhúsahverfi. Þessi vegur kvíslast tvisvar sinnum. Fyrst er tekinn vinstri afleggjarinn og næst sá hægri. Afleggjarinn er alls um 3,5 kílómetrar að lengd, endað er á að aka niður brekku og blasir þá veiðihúsið við á hægri hönd..

Annað

Athugið að veiðimönnum ber að mæta að morgni í veiðihúsið og draga um svæði. Ekki er beðið með drátt ef mætt er of seint. Athugið að vegna úthlutunar til landeigenda eru ekki allir dagar til úthlutunar hjá SVFR.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French