tMýrarkvísl
Mýrarkvísl í Reykjahverfi
Mýrarkvísl er í umboðssölu hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur sumarið 2010. Um er að ræða fallega og netta laxveiðiá norður í Reykjahverfi þar sem veitt er á þrjár dagsstangir. Mýrarkvíslin ein af hliðarám Laxár í Aðaldal og rennur til hennar niður undan Heiðarendanum, skammt ofan við Laxamýri. Áin er veiðanleg um 25. kílómetra leið, með yfir 50 merkta veiðistaði og er fjölbreytileiki þeirra mikill.
Nett lax- og silungsveiðiá í Reykjahverfi| Mýrarkvísl í Reykjahverfi - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Reykjahverfi, um tíu mínútna akstur frá Húsavík. |
| Veiðisvæði: | . |
| Tímabil: | Laxveiðitími árinnar er stuttur, og hjá SVFR er til sölu tíminn 25/7 til 20/9 |
| Veiðileyfi: | Einn til þrír dagar í senn frá morgni til kvölds. Kvóti er einn smálax á stangardag, óháð því hvort veitt er með flugu eða maðki. Ef kvóta hefur verið náð skal öllum laxi sleppt aftur. Veiðimönnum ber að sleppa stórlaxi ef kostur er. Athugið: Brot á veiðireglum geta varðað brottvikningu af veiðislóð. |
| Daglegur veiðitími: | 25. júlí – 15. ágúst kl. 7-13 og 16-22 daglega, 15. ágúst – 20. september kl. 7-13 og 15-21. |
| Fjöldi stanga: | 3 |
| Leyfilegt agn: | Á svæðum 1 og 3 er eingöngu leyft að veiða með flugu en á svæði 2 má beita maðki að auki. |
| Vinsælar flugur: | Svört Frances |
| Veiði síðastliðið ár: | Meðalveiði í Mýrarkvísl sl. 10 ár er um 225 laxar. |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Hægt er að fá aðgang að Veiðihúsinu við Lynghól. Lynghóll er staðsettur í landi Knútsstaða og þar eru fimm herbergi með svefnaðstöðu fyrir tíu manns Frá Lynghól er um tíu mínútna akstur á veiðisvæðin.
Verð fyrir gistingu er kr. 4.900. á mann á sólarhring.
Leiðarlýsing að veiðihúsi
Beygt er af Húsavíkurvegi við bæjarmerki Árness og er veiðhúsið staðsett við bæjarstæðið. Frá Húsavík að Árnesi er um fimmtán mínútna akstur
Að Lynghóli er beygt af Húsavíkurvegi við Knútsstaði. og er Lynghóll rautt hús á hægri hönd.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortNá í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu