tNorðurá í Borgarfirði
Norðurá I
Norðurá í Borgarfirði er í huga margra veiðimanna besta laxveiðiá landsins, en meðalveiði síðustu 10 ára er rúmlega 1.800 laxar á ári. Veiðisvæði Norðurár nær í heild sinni frá Leitisfossum niður að ármótum Norðurár og Hvítár en um 170 merktir veiðistaðir eru á svæðinu. Fjölbreytileiki þeirra mikill, allt frá nettum strengjum í efri hluta árinnar upp í stórar og vatnsmiklar breiður í gilinu neðan við Laxfoss. Í ánni eru þrír fossar helstir, Laxfoss, Glanni og Króksfosss, hver öðrum fallegri. Efsti hluti veiðisvæðisvæðis Norðurár I er kallaður “dalurinn” en þar liðast áin frekar rólega niður flatlendan Norðurárdalinn. Framan af sumri er veiðist mest í gilinu fyrir neðan Laxfoss en eftir því sem líður á tímabilið eykst veiðin eftir því sem ofar dregur. Síðasta sumar veiddust 2.279 laxar í Norðurá og árið þar á undan veiddust 2.347 laxar.
Athugið að skylt er að sleppa laxi yfir 70 cm lengd. Veiði er bönnuð í Nikulásarkeri og 30 metra upp fyrir laxastigann í Laxfossi. Einnig er óheimilt að veiða í Glanna, þ.e. fyrir ofan Berghyl og upp að Hólabakshyl.| Norðurá I - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Borgarfjörður, um 110 km frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Veiðisvæði Norðurár I breytist nokkuð yfir sumarið. Á tímabilinu 7. júní til 15. júní nær það yfir alla ofanverða ána, að Kálfhylsbroti. Frá hádegi 15. júní til 21. júní er Stekkurinn undanskilinn og svæðið nær frá Háreksstaðaeyrum að Hnífli. Frá 5. ágúst til 1. september er Stekkurinn hins vegar með og nær svæðið þá frá Háreksstaðaeyrum að veiðimörkum við Flóðatanga.
Á tímabilinu frá hádegi 1. til 9. september eru seldir tveir dagar í senn frá hádegi til hádegis. Veitt er með 9 stöngum og nær veiðisvæðið upp að Króksfossi.
Vakin er athygli á að fyrri hluta júnímánaðar er einungis veitt með 8 stöngum til 15.júní en 9 stöngum 15.-18.júní.
Veiðivörður er Sigurður S. Tómasson s: 891-9145 |
| Tímabil: | 5. júní til 9. september |
| Veiðileyfi: | Veitt er í þrjá daga í senn frá hádegi til hádegis, nema frá 7. júní til 15. júní og frá 20. ágúst til 4. september þegar er veitt í tvo daga í senn. Athugið að í september er áin seld í tveggja daga hollum frá hádegi til hádegis. Veiðimenn mæta til veiðihúss að kveldi fyrir veiðidag og yfirgefa veiðisvæðið að kveldi seinni dags. |
| Daglegur veiðitími: | 7-13 og 16-22 frá 1. júní – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21. Stytta má hvíldartíma ef allir veiðileyfishafar eru því sammála. |
| Fjöldi stanga: | 8-12 |
| Leyfilegt agn: | Í Norðurá er eingöngu heimilt að veiða á flugu. Athugið að skylt er að sleppa tveggja ára laxi sem er yfir 70cm. |
| Vinsælar flugur: | frances, Snælda, Blue Charm, Collie Dog, Black Sheep, Haugur, ýmsar gáruhnútstúpur og örtúpur. |
| Veiði síðastliðið ár: | 2.279 laxar veiddust í Norðurá sumarið 2010 |
| Umsjónaraðili: | Veiðivörður: Sigurður S. Tómasson s: 891-9135 |
|
Veiðihús
Veiðihúsið við Norðurá er eitt af glæsilegustu og best búnu veiðihúsum landsins. Vorið 2003 var allt eldhúsið endurnýjað, byggð ný borðstofa og sólpallur stækkaður. Í húsinu eru 13 tveggja manna herbergi, öll með sér baðherbergi. Þá eru í húsinu gufubað, vöðlugeymsla og stór laxageymsla. Veiðimönnum er skylt að dvelja í veiðihúsinu og mega þeir koma í húsið einni klst. fyrir veiðitíma. Brottfarardag skal rýma herbergi einni klst. eftir að veiðitíma lýkur. Skyldufæði er í veiðihúsinu allt tímabilið. Fæðisverð er kr. 10.900.- á dag fyrir hvern veiðimann 7/6 - 21/6 og 8/8 - 9/9. Miðast það við að tveir séu á stöng. Ef einn veiðimaður er á stöng er verð krónur 13.900.- Á tímabilinu frá 21/6 – 20/8 er verð fyrir fæði og gistingu krónur 19.500.-. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Um 100 km. frá Reykjavík. Ekinn er þjóðvegur 1 í gegn um Borgarnes og áfram norður. Um 5 km. norðan við veitingaskálann Baulu (25 km. norðan við Borgarnes) er beygt til hægri upp afleggjara sem liggur að veiðihúsinu. Annað
Skylt er að sleppa aftur laxi sem er 70cm og stærri.
Veiði er bönnuð í Nikulásarkeri og 30 metra upp fyrir laxastiga í Laxfossi. Einnig er bannað að veiða í Glanna, þ.e. ofan Berghyls og upp að Hólabakshyl. Gæta skal varúðar við notkun báta og kláfs, tæki þessi nota menn á eigin ábyrgð. Sérstakrar varúðar er þörf við notkun kláfsins í vatnavöxtum. Gott veiðikort og veiðistaðalýsing af ánni fæst á skrifstofu SVFR og í veiðihúsinu.
“Norðurá er oft nefnd "fegurst áa" og ekki að ástæðulausu. Hún er sérlega fjölbreytt og margslunginn og öll umgjörðin vel vönduð af skaparans hálfu. Tær áin líður líkt og silfurvafningur á flugulegg í gegnum stórfengleg gljúfur og víðan dalinn. Gróðursælt hraunið, alsett kynjamyndum, fullkomnar myndina. Það eru fáir veiðimenn sem ekki heillast af Norðurá eftir að hafa kynnst leyndardómum hennar og fjölbreytileika.”Jón G. Baldvinsson Fara efst á síðu