Norðurá II

Norðurá II er frábær kostur fyrir þá sem vilja veiða í Norðurá, en vera í litlum hópi út af fyrir sig. Fuglalíf er mikið á svæðinu og ekki er óalgegnt að spakar rjúpur séu á vappi kring um veiðimenn. Í júnímánuði er kastað fyrir sprækan og sterkan vorlaxinn og hentar veiðsvæðið sérlega vel til fluguveiða. Þar má finna nafntogaða veiðistaði svo sem Kálfhyl, Spegilinn og Klettsbreiðu. Eftir 6. júlí breytist svæðið og þá er veiðisvæði frá og með Símastreng upp að brú ofan Fornahvamms. Um er að ræða einstaklega skemmtilegan kost fyrir fjölskyldur eða litla hópa.



Athugið að skylt er að sleppa laxi yfir 70 cm lengd. Griðarsvæði laxa er ofan brúar við Fornahvamm. Á fluguveiðitíma skal aðeins nota hefðbundnar flugustangir.
Norðurá II - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Borgarfjörður, u.þ.b. 100 km frá Reykjavík
Veiðisvæði:Frá 5-7. júní nær veiðisvæðið frá Hnýfli að veiðimörkum neðan Munaðarness. Frá 16. júní nær veiðisvæðið frá og með Kálfhyls broti að veiðimörkun neðan Munaðarness.Frá 6/7 og út veiðitímann nær veiðisvæðið frá Símastreng og upp í Hvassármót.
Tímabil:Frá hádegi morgni 5. júní til hádegis 1. september
Veiðileyfi:Einn eða fleiri dagar í senn frá hádegi til hádegis. Á tveggja stanga tíma eru stangirnar tvær aðeins seldar saman. Munið að skrá veiðina í bók sem liggur frammi í veiðihúsinu.
Daglegur veiðitími:Daglegur veiðitími: Veitt er frá kl. 7-13 og 16-22, en frá hádegi 14. ágúst er veitt frá 7-13 og 15- 21. Skipt er á hálfum degi.
Fjöldi stanga:2-3
Leyfilegt agn:Eingöngu heimillt að veiða á flugu með fluguveiðitækjum. Athugið að skylda er að sleppa stórlaxi yfir 70cm. Veiðivörður er Sigurður S. Tómasson s: 891-9135
Vinsælar flugur:Frances, Snælda, Collie Dog, Black and Blue og Silver Blue.
Veiði síðastliðið ár:2.279 laxar veiddust í Norðurá 2010
Umsjónaraðili:Veiðivörður: Sigurður S. Tómasson s: 891-9135

Veiðihús

Veiðihúsið fyrir Norðurá II „Skógarnef“ er á fallegum stað í landi Hvamms. Umhverfið er skógi vaxið og úr húsinu er fallegt útsýni yfir ána. Veiðihúsið er vandað sumarhús, með þremur tveggja manna herbergjum, eldhúskrók, stofu, borðstofu og baðherbergi með sturtu. Rafmagn er í húsinu. Einnig er þar svefnloft, útigeymsla og ágæt sólverönd. Gasgrill er við húsið. Veiðimenn leggja sjálfir til mat og hreinlætisvörur. Veiðimenn mega koma í húsið einni klukkustund eftir að veiði lýkur og skulu rýma það fyrir sama tíma á brottfarardag. Vinsamlegast ræstið húsið vel fyrir brottför og takið með ykkur allt rusl.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Frá Reykjavík er ekinn þjóðvegur 1 í gegn um Borgarnes og áfram norður. Veiðihúsið er í landi Hvamms, u.þ.b. 10 km. fyrir norðan Hreðavatnsskála. Ekið er framhjá bænum Hvammi og er þá komið að húsinu á vinstri hönd (vestan megin). Til að komast að veiðistöðum í Munaðarnesi er ekinn afleggjari merktur “Munaðarnes”, en hann er u.þ.b. einn km. fyrir norðan Baulu. Ekið er í átt að bænum Munaðarnes, en rétt áður en komið er að bænum er beygt til vinstri og ekið upp með ánni. Afleggjarinn að Stekknum er u.þ.b. einn km. fyrir sunnan afleggjarann að veiðihúsinu, rautt hlið merkt “Stekkur”.

Annað

Athugið að skylda er að sleppa stórlaxi yfir 70cm. Veiðikort er fáanlegt á skrifstofu SVFR.
“Norðurá er oft nefnd "fegurst áa" og ekki að ástæðulausu. Hún er sérlega fjölbreytt og margslunginn og öll umgjörðin vel vönduð af skaparans hálfu. Tær áin líður líkt og silfurvafningur á flugulegg í gegnum stórfengleg gljúfur og víðan dalinn. Gróðursælt hraunið, alsett kynjamyndum, fullkomnar myndina. Það eru fáir veiðimenn sem ekki heillast af Norðurá eftir að hafa kynnst leyndardómum hennar og fjölbreytileika.”Jón G. Baldvinsson
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French