Elliðaár

Elliðaárnar eru sannkölluð perla Reykjavíkur og megum við Íslendingar vera stoltir af því að eiga jafn góða laxveiðiá og raun ber vitni í höfuðborg landsins. Veiðin í Elliðaánum hefur verið stöðug og góð undanfarin ár. Veiðin sumarið 2011 var svipuð og sumarið 2010 og skiluðu Elliðaárnar 1.147 löxum á land samanborið við 1.164 laxa 2010. Er þetta svipuð veiði og meðaltal síðustu 80 ára sem er liðlega 1140 laxar. Við vonumst til þess að góð veiði verði í Elliðaánum á komandi sumri enda hefur hófs verið gætt í veiðinni undanfarin ár. Þannig slepptu veiðimenn 258 löxum sl. sumar sem vonandi hafa skilað sér til hrygningar í haust. Seiðum hefur ekki verið sleppt í Elliðaárnar undanfarin ár og eru þær því sjálfbærar, þ.e. afkoma laxastofnsins byggir einvörðungu á seiðaframleiðslu árinnar sjálfrar. Því var kvóti tveir laxar á hálfsdagstöng og verður svo áfram.
Laxveiðiperla í miðri borg.
Stóra Laxá I & II - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Í miðri höfðuborginni.
Veiðisvæði:Frá Elliðavatnsstíflu niður að ósi. Óheimilt er að veiða á eftirtöldum stöðum: Ekki má veiða nær laxastiga í Elliðavatnsstíflu en 50 metra. Sama gildir um Árbæjarstíflu og teljarann við Rafstöðina, þar sem veiði er óheimil 50 metrum fyrir ofan og neðan þessi mannvirki. Veiði er bönnuð í vesturkvísl Elliðaánna, frá Höfðabakkabrú að sjó. Í júní og eftir miðjan ágúst eru veiðisvæðin tvö og þá er veitt á fjórar stangir í ánum. Frá og með 1. júlí til og með 15. ágúst eru veiðisvæðin þrjú og veitt með sex stöngum. Tvær stangir eru á hverju svæði. Stór hluti Elliðaánna er frjálst veiðisvæði og ekki innan skiptingar. Allar nánari upplýsingar um veiðisvæði gefa veiðiverðir, en einnig eru nákvæmar upplýsingar um veiðireglur og veiðisvæði fáanlegar í veiðihúsi. Veiðimenn eru hvattir til að kynna sér veiðireglurnar vel áður en veiði hefst. Brot á veiðireglum varðar brottvikningu úr Elliðaánum.
Tímabil:Silungsveiðitímabilið í Elliðaánum hefst 1. maí og lýkur 15. júní, en laxveiðin hefst 20. júní og stendur til og með 31. ágúst.
Veiðileyfi:Hálfur dagur í senn.
Daglegur veiðitími:Kl. 7.00–13.00 og 15.00–21.00 daglega.
Fjöldi stanga:4 - 6
Leyfilegt agn:Fluga og maðkur. Í urriðaveiði á vorin er aðeins leyfð fluguveiði.
Vinsælar flugur:Rauð Frances, Svört Frances, Snælda.
Veiði síðastliðið ár:1.147 laxar 2011
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihúsið er lítið og þægilegt og notað í upphafi daglegs veiðitíma til að draga um svæði og í lok veiðitímans til að skrá afla. Þar er salernisaðstaða fyrir veiðimenn.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Veiðihúsið stendur í hólmanum á milli austur- og vesturkvíslarinnar, rétt ofan vegarins upp Ártúnsbrekku. Sé ekið niður Breiðholtsbraut er beygt til hægri inn á aðrein að Vesturlandsvegi. Á miðri aðreininni er beygt til hægri inn á afleggjara sem liggur að veiðihúsi.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French