Stóra Laxá III – Tveggja stanga frábært svæði

Stóra Laxá í Hreppum er ein magnaðasta veiðiá landsins en er ekki allra. En fyrir unnendur stórbrotinnar náttúru þar sem maðurinn finnur til smæðar sinnar andspænis sköpunarverkinu, er hún sannkallað undur. Hér er vonin um að stórlax rati á færið hvað mest á suður- og vesturhluta landsins og sömu veiðimenn, sem kynnst hafa leyndardómum Stóru-Laxár hlíða kalli hennar ár hvert.
Svæði III er fjölbreytt og hefur að geyma marga sögufræga staði s.s. Sveinsker og Iðu. Sumarið 2009 gaf hún samtals 638 laxa sem er þriðja aflamesta veiðisumar í ánni.

Vinsamlegast athugið að í stað veiða/sleppa reglu hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng eftir 1. september.
Stóra Laxá III - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Suðurland, Hrunamannahreppur, 105 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði:Veiðisvæði III er frá og með Sveinskeri að og með Undirgangi.
Tímabil:1. júlí til 30. september.
Veiðileyfi:Frá 1. júlí og til 13. ágúst eru seldir stakir dagar frá hádegi til hádegis, einn eða fleiri dagar í senn. Þann 14. ágúst er seldur 1.5 dagur til hádegis 15. ágúst. 15. ágúst til 30. september eru seld tveggja daga holl frá hádegi til hádegis.
Daglegur veiðitími:7-13 og 16-22 daglega en frá hádegi 14. ágúst frá kl 7-13 og 15-21.
Fjöldi stanga:2
Leyfilegt agn:Fluga, maðkur og spónn allan veiðitímann. Öllum laxi yfir 70 cm skal sleppt og skal særður lax njóta vafans. Frá og með 1. september er tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng og skal veitt og sleppt eftir að kvóta er náð.
Vinsælar flugur:Rauð Frances, Svört Frances, Snælda, Collie Dog.
Veiði síðastliðið ár:291 laxar á ári (öll áin 1974-2003).
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihús er gott með tveimur tveggja manna herbergjum, baðherbergi, rafmagni og hita. Við húsið er heitur pottur og gasgrill. Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl og henda í sorpgáma sem staðsettir eru fyrir utan húsið. Í húsinu eru sængur og koddar en veiðimenn leggja til sjálfir sængurfatnað, matvæli og allar hreinlætisvörur.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Veiðihúsið er í landi Hlíðar. Veiðimenn beygja af Suðurlandsvegi inn á Skeiðaveg (í átt að Flúðum). Síðan er beygt til hægri inn á Þjórsárdalsveg eftir að farið er fram hjá Sandlæk. Rétt eftir að farið er yfir Kálfá er beygt til vinstri inn á Hælisveg. Ekið er fram hjá Hæli, um hlaðið á Hlíð að veiðihúsinu.

Annað

Utanfélagsmenn greiða 20% hærra verð en félagar í SVFR
Takið eftir: Stangirnar tvær eru aðeins seldar saman.
“Það er hægt að gleyma stað og stund í hrikalegum gljúfrum Stóru Laxár, sem eru eins og tröllaborgir úr öðrum heimum. Vissan um þann stóra gefur einhvern auka kraft sem aðeins er til staðar í örfáum ám á Íslandi. Já, nær guði kemst maður eiginlega ekki." Hilmar Hansson
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French