Stóra Laxá IV – Eitt flottasta laxveiðisvæði landsins

Stóra-Laxá í Hreppum er ein magnaðasta veiðiá landsins en er ekki allra. En fyrir unnendur stórbrotinnar náttúru þar sem maðurinn finnur til smæðar sinnar andspænis sköpunarverkinu, er hún sannkallað undur. Hér er vonin um að stórlax rati á færið hvað mest á suður- og vesturhluta landsins og sömu veiðimenn, sem kynnst hafa leyndardómum Stóru-Laxár hlíða kalli hennar ár hvert. Svæði IV er án efa eitt fallegasta og hrikalegasta laxveiðisvæði landsins og hefur margur veiðimaðurinn orðið agndofa yfir fegurð þess er hann kemur þangað í fyrsta sinn.Svæðið er mjög breytilegt, þar sem skiptast á flottir fluguveiðistaðir og rennilegir maðkastrengir. Hluti svæðisins er erfiður yfirferðar og ráðleggjum við ekki eldra fólki eða mjög ungu að fara þangað til veiða. Sumarið 2009 gaf hún samtals 638 laxa sem er þriðja aflamesta veiðisumar í ánni.
Vinsamlegast athugið að í stað veiða/sleppa reglu hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng eftir 1. september.
Stóra Laxá IV - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Staðsetning: Suðurland, Hrunamannareppur, 115 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði:Veiðisvæði IV nær frá og með Bláhyl að og með ármótum Skillandsár.
Tímabil:1. júlí júní til 31. ágúst
Veiðileyfi:Seldir eru stakir dagar frá morgni til kvölds, einn eða fleiri dagar í senn.
Daglegur veiðitími:7-13 og 16-22 daglega en frá hádegi 14.ágúst frá kl 7-13 og 15-21.
Fjöldi stanga:4.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn allan veiðitímann. Öllum laxi yfir 70 cm skal sleppt og skal særður lax njóta vafans.
Vinsælar flugur:Rauð Frances, Svört Frances, Snælda.
Veiði síðastliðið ár:291 lax (öll áin 1974-2003).
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihús er með svefnrými fyrir 10 manns í 5 herbergjum, rafmagni og hita. Við húsið er heitur pottur og kolagrill. Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl. Í húsinu eru sængur og koddar fyrir 8 manns, en veiðimenn leggja til sjálfir sængurfatnað, matvæli og allar hreinlætisvörur.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Veiðihúsið er í landi Laxárdals. Veiðimenn beygja af Suðurlandsvegi inn á Skeiðaveg (í átt að Flúðum). Síðan er beygt til hægri inn á Þjórsárdalsveg eftir að farið er fram hjá Sandlæk. Farið er fram hjá samkomuhúsinu og bensínstöðinni í Árnesi og beygt strax til vinstri inn á Gnúpverjaveg. Þaðan eru 8 km í Laxárdal og er beygt til vinstri af Gnúpverjaveg við skilti er vísar inn á Mástunguveg. Sá vegur liggur heim að Laxárdal og um hlaðið á veiðihúsinu.
“Það er hægt að gleyma stað og stund í hrikalegum gljúfrum Stóru Laxár, sem eru eins og tröllaborgir úr öðrum heimum. Vissan um þann stóra gefur einhvern auka kraft sem aðeins er til staðar í örfáum ám á Íslandi. Já, nær guði kemst maður eiginlega ekki." Hilmar Hansson
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French