tStraumarnir í Borgarfirði
Veiðisvæði Strauma
Þar sem Norðurá í Borgarfirði sameinast Hvítá er fornfrægt veiðisvæði Strauma. Svæðið er stangaveiðimönnum að góðu kunnugt og þá helst vegna þess að þar geta veiðimenn lent í miklum aflahrotum þegar laxinn er á göngu upp í bergvatnsárnar. Í Straumum veiðist lax sem gengur upp í Norðurá, Gljúfurá og Þverá auk þess sem eitthvað af laxi heldur alltaf til á svæðinu fram á haustið. Sjóbirtingur bætist í veiðina strax upp úr miðjum júlí.
Frábær veiði hefur verið í Straumunum undanfarin ár og sumarið 2010 veiddust 344 laxar og sumarið áður voru þeir 368.
Straumarnir eru nú seldir sem tvær stangir allt tímabilið og er frábær kostur fyrir veiðimenn en veiðisvæðinu fylgir veiðihús sem er aðeins steinsnar frá veiðisvæðinu. Aðstaða hefur verið bætt verulega með nýju húsi með tveimur svefnherbegjum til viðbótar gamla sjarmerandi veiðihúsinu. Straumarnir er því kjörið svæði fyrir fjölskylduna.
| Veiðisvæði Strauma - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Borgarfjörður, um klukkustundar akstur frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Frá morgni 5. júní til hádegis 19. júní er veiðisvæðið selt frá hádegi til hádegis, en eftir það í tveggja daga hollum út veiðitímann. Veiðisvæðið nær frá Straumaklöpp að veiðimörkum við Ferjukotseyrar. |
| Tímabil: | 5. júní til 31. ágúst |
| Veiðileyfi: | Stangirnar eru seldar saman. |
| Daglegur veiðitími: | 7-13 og 16-22 frá 5. júní – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur. |
| Vinsælar flugur: | Frances, Snælda, Blue Charm, Hairy Mary, Collie Dog, Black Sheep. |
| Veiði síðastliðið ár: | 344 laxar sumarið 2010 |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Húsið er annað elsta veiðihús landsins, byggt af enskum veiðimönnum um 1930. Í húsinu eru tvö tveggja manna herbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Í húsinu eru fjögur einbreið rúm og einn beddi í stofu en sumarið 2008 var komið upp auka gistihúsi í námunda við eldri húsin, þar sem eru tvö auka svefnherbergjum. Verönd með grilli. Aðgerðaaðstaða er í sér húsi. Veiðimenn mega koma í húsið einni klukkustund fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús klukkustund eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Hægt er að kaupa þrif. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ekið er upp ásinn við Ferjukot, nánar tiltekið á milli Ferjukotssíkja og gömlu Hvítárbrúar. Þaðan er ekið uns komið er að húsinu.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Ná í veiðiskýrslu
Fara efst á síðu