tSogið – Þar sem stórfiskarnir bregða á leik
Sog Syðri Brú
Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg. Syðri-Brú er efsta laxveiðisvæðið í Soginu og þar er veitt á eina stöng. Þótt Syðri-Brú sé ekki stórt veiðisvæði né þar séu margir merktir veiðistaðir þá hefur það sinn sjarma. Landaklöppin er stórbrotinn veiðistaður. Þarna liggur laxinn uppi á klöppinni eða í strengnum frá útfallinu og hentar staðurinn vel til veiða með flugu eða spæni en síður með maðki. Ekki er leyft að veiða á uppfyllingartanganum austan við útfallið frá virkjuninni. Sakkarhólmi er einnig ágætur veiðistaður. Sumarið 2009 var gott veiðisumar í Soginu en þá veiddust 718 laxar. Í Syðri-Brú veiddust 141 laxar.
Athugið að í stað veiða/sleppa reglu í september hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Einnig eru veiðimenn minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.| Sog Syðri Brú - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | U.þ.b. 50 km. frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Austurbakki Sogsins frá útfalli frá virkjun niður að Markalæk. |
| Tímabil: | 20. júní til 24. september. |
| Veiðileyfi: | Einn eða fleiri dagar í senn |
| Daglegur veiðitími: | Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 7-13 og 16-22. Eftir 14. ágúst er veitt á seinni vaktinni frá kl. 15-21 |
| Fjöldi stanga: | 1 |
| Leyfilegt agn: | Maðkur, fluga, spónn. Fluga, maðkur og spónn. Athugið að eftir 1. september er tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Eftir það skal veitt og sleppt. |
| Vinsælar flugur: | Vinsælar flugur: Svört og Rauð Frances, Snælda |
| Veiði síðastliðið ár: | 141 laxar sumarið 2009 |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Á staðnum er lítið veiðihús með svefnrými fyrir fjóra. Í húsinu er snyrtiaðstaða, gashitun og gaslýsing. Veiðimenn leggja sjálfir til mat, hreinlætisvörur, sængurföt og handklæði. Þeim ber að þrífa húsið fyrir brottför og taka með sér rusl.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ef komið er úr Reykjavík er beygt til vinstri Grímsnesafleggjara (vegur 36) eftir að ekið hefur verið yfir brúna hjá Þrastarlundi. Rétt áður en komið er að Ljósafossvirkjun er beygt til vinstri, farið í gegnum hlið á girðingu, beygt strax til hægri og ekið niður brekku að veiðihúsinu. Merki SVFR er við hliðið á girðingunni.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Ná í veiðiskýrslu
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen Fara efst á síðu