tSogið – Þar sem stórfiskarnir bregða á leik
Sog Þrastarlundur
Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg og er svæðið í eigu Ungmennafélags Íslands. Líkt og annars staðar í Soginu er hægt að hitta á góða lax- og bleikjuveiði. Þetta er stórfiskasvæði og veiðin undanfarin tvö ár hefur verið mjög góð. Sumarið 2009 var gott veiðisumar í Soginu en þá veiddust 718 laxar.
Athugið að í stað veiða/sleppa reglu í september hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Einnig eru veiðimenn minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.| Sog Þrastarlundur - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | U.þ.b. 50 km. frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Veitt er með einni stöng á austurbakka Sogsins frá veiðimörkum við svokallað Kúagil, sem er rétt neðan við tjaldsvæðið og bílastæðin, niður að brú á þjóðvegi. |
| Tímabil: | 28. júní til 28. september. |
| Veiðileyfi: | Einn eða fleiri dagar í senn |
| Daglegur veiðitími: | Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 7-13 og 16-22. Eftir 14. ágúst er veitt á seinni vaktinni frá kl. 15-21. |
| Fjöldi stanga: | 1 |
| Leyfilegt agn: | Maðkur, fluga, spónn. Fluga, maðkur og spónn. Frá 1. september er kvóti tveir laxar á stöngina. Eftir það skal veitt og sleppt. |
| Vinsælar flugur: | Svört og rauð Frances, Snælda. |
| Veiði síðastliðið ár: | |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Ekkert veiðihús er fyrir svæðið. Veiðibókin er staðsett í kassa við Kúagil.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Slóðinn fyrir aftan söluskálann í Þrastarlundi er nú lokaður og því ekki hægt að nota hann til að komast að veiðistað. Ekkert veiðihús er fyrir Þrastarlundarsvæðið, en verði þess óskað af félagsmönnum er víst að bót verður ráðin á þeim vanda í framtíðinni. Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Ná í veiðiskýrslu
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen Fara efst á síðu