tSogið – Þar sem stórfiskarnir bregða á leik
Sog Alviðra
Sog Alviðra - Vorveiði
Vorveiðin á Alviðru hefur lítið verið stunduð en ljóst er að þar leynist talsvert af bleikju, sem getur verið stór, eins og á öðrum svæðum í Soginu. Sogið er rómuð silungsveiðiá. Bleikjurnar sem þar finnast gefa löxunum oft á tíðum ekkert eftir.Ljóst er að enn vantar mikið upp á að allir leyndardómar svæðisins í þessum efnum hafi verið uppgötvaðir. Glæsilegt veiðihús fylgir svæðinu..
| Sog Alviðra - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Suðurland, u.þ.b. 50 km frá Reykjavík. |
| Veiðisvæði: | Veiðisvæðið er vesturbakki Sogs fyrir landi Alviðru frá Álftavatni að ármótum við Hvítá og austurbakki neðan brúar við Þrastarlund að sömu ármótum. |
| Tímabil: | 1. apríl til 31. maí. |
| Veiðileyfi: | Einn eða fleiri dagar í senn. |
| Daglegur veiðitími: | Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 7-13 og 16-22. Eftir 14. ágúst er veitt á seinni vaktinni frá kl. 15-21. |
| Fjöldi stanga: | 3 |
| Leyfilegt agn: | Maðkur, fluga, spónn |
| Vinsælar flugur: | Allar hefðbundnar silungaflugur ganga vel í silungnum í vorveiðinni. |
| Veiði síðastliðið ár: | |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Á Alviðru er glæsilegt veiðihús með þremur svefnherbergjum. Í húsinu er rafmagn og heitt vatn. Veiðimenn mega koma í húsið klukkustund eftir að veiðitíma lýkur daginn fyrir veiðidag og ber að rýma það á sama tíma brottfarardag. Veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað, mat og hreinlætisvörur. Á staðnum er kolagrill, sængur og koddar. Veiðimenn eru minntir á að gæta ítrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og taka með sér rusl.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Veiðihúsið stendur rétt fyrir ofan gatnamót Grafningsvegar, (leiðir merktar 350 og 35 áður en komið er að brúnni við Þrastarlund.) Ekið er frá Grafningsvegi áleiðis upp heimreið að Alviðrubænum og síðan til hægri. ATHUGIÐ Tilboð í apríl og maímánuði. Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen Fara efst á síðu