Sogið – Ásgarður

Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg. Veiðisvæðið fyrir landi Ásgarðs er þéttskipað kyngimögnuðum veiðistöðum. Fyrir Ásgarðslandi, sem annars staðar í Soginu, eru aðstæður til fluguveiða eins og þær gerast bestar. Hér er talsvert af bleikju og getur hún verið stór eins og á öðrum svæðum í Soginu.
Athugið að skylt er að sleppa hoplaxi.
Sog Ásgarður - Almennar upplýsingar
Staðsetning: U.þ.b. 50 km. frá Reykjavík
Veiðisvæði: Veitt er með tveimur stöngum á austurbakka Sogsins frá veiðimörkum við svokallað Kúagil, sem er rétt neðan við tjaldsvæðið og bílastæðin, upp að Álftavatni
Tímabil: 14. júní til 28. september.
Veiðileyfi: Einn eða fleiri dagar í senn
Daglegur veiðitími: Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 08.00 til 08.00
Fjöldi stanga: 3
Leyfilegt agn: Maðkur, fluga, spónn.
Vinsælar flugur: Ýmsar silungaflugur og púpur
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Ekkert veiðihús er fyrir svæðið. Veiðimönnum stendur til boða salernis- og hreinlætisaðstaða í nýjum veitigaskála í Þrastarlundi. Veiðibókin verður staðsett í veitingaskálanum og fá veiðimenn veitingar með sérstökum afslætti gegn framvísun veiðileyfis.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Til þess að komast að veiðisvæðinu er ekið að söluskálanum í Þrastarlundi og um slóða fyrir aftan skálann, í gegnum skóginn og inn á tjaldstæðið. Þaðan liggur göngustígur að ánni. Ekkert veiðihús er fyrir Þrastarlundarsvæðið, en verði þess óskað af félagsmönnum er víst að bót verður ráðin á þeim vanda í framtíðinni.
Sog Ásgarður - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
20/6 - 29/6 2 1.900
30/6 - 6/7 2 2.300
7/7 - 13/7 2 2.800
14/7 - 31/8 2 2.300
1/9 - 28/9 2 1.600
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen
Fara efst á síðu
 
Icelandic English Spanish German French