tVeiðisvæði Baugstaðaóss og Vola
Veiðisvæði Baugstaðaóss og Vola
Hér er komin eitt albesta sjóbirtingssvæði landsins. SVFR getur í samvinnu við Stangaveiðifélag Selfoss boðið veiðileyfi á þessu fjölbreytta veiðisvæði sem er þrískipt og er veitt með tveimur dagsstöngum á hverju fyrir sig. Baugstaðaós, Tungu-Bár og Voli eru afar spennandi og áhugaverð veiðisvæði. Við hvetjum veiðimenn til þess að skrá afla samviskusamlega, aka ekki utan vega og loka hliðum.
Veiðistaðalýsingu er að finna hér neðst á síðunni
| Veiðisvæði Baugstaðaóss og Vola - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Skammt utan við Stokkseyri |
| Veiðisvæði: | Þau eru þrjú og er veitt með tveimur dagsstöngum á hverju fyrir sig |
| Tímabil: | 1-4 maí, 12-18 maí, 26 maí-2.júní, 9-16 júní, 23-30 júní, 7-14 júlí, 21-28 júlí, 4-11 ágúst, 18-25 ágúst, 1-8 september, 15-22 september, 29 september - 6 október, 13-20 október |
| Veiðileyfi: | Seldur er einn veiðidagur í senn í samræmi við það sem að neðan má lesa. Veiðimenn hefja veiðar kvöldið fyrir veiðidag. |
| Daglegur veiðitími: | Tvær stangir eru leyfðar á svæðunum og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá 07.00 - 22.00. Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 - 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 - 20.00 að kvöldi veiðidags. Þetta á þó ekki við á svæðinu Tungu-Bár þar sem leyfi eru seld án veiðihúss. Þar er veitt frá 08.00 til 20.00 einn dag í senn. |
| Fjöldi stanga: | Tvær á hverju svæði |
| Leyfilegt agn: | Baugstaðaós; Fluga, maðkur og spónn. Þó er eingöngu leyfilegt að veiða með flugu í maímánuði og eftir 10. október og þá skal sleppa öllum veiddum sjóbirtingi. Tungu-Bár:Veiðitímabilið er frá 1. maí til 20. október. Daglegur veiðitími er frá 8 til 20 og eru 2 stangir leyfðar. Voli: Veiði hefur verið leyfð undan farin ár frá 1. maí til 20. október. Tvær stangir eru leyfðar á svæðinu og eru þær seldar saman. Daglegur veiðitími er frá kl. 07.00-22.00 Fluga, maðkur og spónn Veiðileyfi gildir frá kl. 20.00 - 22.00 kvöldið fyrir veiðidag og frá kl. 07.00 - 20.00 að kvöldi veiðidags nema í tilfelli Tungu-Bár þar sem veitt er frá 08.00 -20.00 samfleytt. |
| Vinsælar flugur: | Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn |
| Veiði síðastliðið ár: | |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Voli: Veiðihús er á svæðinu og stendur það við gömlu brúna við Vola. Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing ( sólarrafhl.), gashitun, gashellur o.fl.
Veiðimenn skulu rýma húsið fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Tungu-Bár: Ekkert veiðihús fylgir svæðinu.
Baugstaðaós: Veiðihús fylgir svæðinu og stendur það á lækjarbakkanum að austanverðu rétt við veginn. Húsið er merkt VEIÐIHÚSIÐ TUNGU , sjá kort.
Í húsinu er svefnaðstaða fyrir 4-6 manns, rennandi vatn, wc, raflýsing (sólarrafhl.), gashitun, gashellur o.fl.
Veiðimenn skulu rýma húsin fyrir kl. 19.00 að kvöldi brottfarardags til að gefa þeim sem á eftir koma kost á að koma sér fyrir áður en veiði hefst kl. 20.00.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið vandlega fyrir brottför og fjarlægja rusl
Nánari lýsing veiðisvæða:
Baugstaðaós : Ósinn er skammt austan Stokkseyrar. Til hans fellur auk Hróarsholtslækjar, Baugstaðaá sem kemur úr Skipavatni og eru veiðimörk við útfallið úr vatninu. Fiskur gengur bæði um ósinn í Hróarsholtslæk (Vola) og Baugstaðaá. Ósinn er fornfræg veiðistöð einkum fyrir góða sjóbirtingsveiði.
Fiskurinn er blandaður að stærð eða frá 1 pundi upp í 16 punda bolta. Þegar göngur koma er oft mjög líflegt og má segja að ósinn kraumi af fiski þegar mest er um að vera.
Nokkrir laxar koma einnig á land á hverju sumri, flestir á bilinu 5-10 pund. Þá er ótalin sjóbleikja sem lítillega verður vart við bæði í ósnum og einnig í Vola og gæti verið spennandi fyrir áhugasama fluguveiðimenn að kanna betur, t.d. snemma að vori.
Þá má nefna mikið fuglalíf við ósinn sem gerir hann að skemmtilegum stað að dvelja við á góðum degi.
Tungu-Bár: Vatnasvæðið er um 11 km langt eða frá gömlu brúnni við Bár í nágrenni Selfoss að brúnni við veiðihúsið í Tungu skammt austan Stokkseyrar. Gott veiðikort er af svæðinu með vegamerkingum og bæjarnöfnum svo vel má átta sig á aðkomu að svæðinu og einstaka veiðistöðum. Á bakhlið veiðikortsins er að finna greinargóða lýsingu á öllum helstu veiðistöðum á svæðinu.Fluguveiði er vaxandi á þessu svæði sem annarsstaðar í læknum á kostnað maðksins sem þó gefur oft góðan afla. Sjóbirtingur er aðall svæðisins en hann er kominn á svæðið fljótlega eftir að hans verður vart í ósnum. Þá fást venjulega nokkrir laxar á hverju sumri. Svæðið gefur meiri afla en skýrslur sýna því ekki er veiðibók á svæðinu en ekki næst í nema hluta veiðimanna til að fá upplýsingar um veiði.
Voli: Svæðið er mjög stórt eða með Bitrulæk a.m.k. 12-14 km. Veiðikort er af svæðinu með góðum vegamerkingum og bæjarnöfnum auk merktra veiðistaða. Svæðið er í nágrenni Selfoss eða innan við 10. mín. akstur hvort sem farið er að efri hluta svæðisins ( t.d. veiðihúsi ) eða að neðri veiðimörkum sem eru gamla brúin við Bár.
Á þessu svæði er staðbundinn urriði, staðbundin bleikja, sjóbirtingur, sjóbleikja, lax og jafnvel stöku áll. Má segja að von sé í ágæta silungsveiði frá vori og fram til loka á haustin á Volasvæðinu Annað
Mikilvægt er að skrá alla veiði í veiðibók og er sérstaklega brýnt fyrir veiðimönnum að skrá aðeins einn fisk í hverja línu veiðibókarinnarVídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Engin veiðiskýrsla skráð
Fara efst á síðu