t
Sogið – Þar sem stórfiskarnir bregða á leik
Sog Bíldsfell
Bíldsfell - vorbleikja
Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg. Bíldsfellssvæðið er í huga margra einn samfelldur veiðistaður, draumastaður fluguveiðimanna. Bíldsfellssvæðið hefur löngu sannað sig sem frábært bleikjuveiðisvæði. Hefur gjarnan veiðst mjög vel í vorveiðinni á svæðinu. Margir veiðimenn heimsækja svæðið eingöngu til að gera út á bleikjuna.
Veiðimönnum er skylt að sleppa hoplaxi.
| Sog Bíldsfell - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Suðurland, u.þ.b. 50 km frá Reykjavík. |
| Veiðisvæði: |
Vesturbakki Sogs fyrir landi Bíldsfells og Tungu í Grafningi frá útfallinu frá virkjuninni að veiðimörkum ofan Torfastaðaveiða. |
| Tímabil: |
1. apríl til 31.maí. |
| Veiðileyfi: |
Einn eða fleiri dagar í senn. |
| Daglegur veiðitími: |
Veitt er frá morgni til kvölds, 08.00 - 08.00 |
| Fjöldi stanga: |
3 |
| Leyfilegt agn: |
Maðkur, fluga, spónn |
| Vinsælar flugur: |
Ýmsar bleikjuflugu, gjarnan þyngdar. |
| Veiði síðastliðið ár: |
|
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Á Bíldsfellssvæðinu er glæsilegt veiðihús með þremur tveggja manna herbergjum. Í húsinu er hiti, rafmagn og steypibað. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og taka með sér rusl.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Ef komið er frá Reykjavík er beygt til vinstri upp Grafningsveg (vegur 350) áður en komið er að brúnni yfir Sogið hjá Þrastarlundi. Að afleggjaranum að Bíldsfelli eru um 5 km. Sá afleggjari er ekinn alveg niður að á, þar sem veiðihúsið stendur.
| Sog Bíldsfell - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 1/4-31/5 |
3 |
4.900 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Ná í kort
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen
Fara efst á síðu