t
Eldvatnsbotnar – Fallegt & fjölskylduvænt sjóbirtingssvæði
Eldvatnsbotnar
Eldvatnsbotnar eru gott sjóbirtingssvæði í landi Botna í Vestur Skaftafellssýslu u.þ.b 50 km austan við Vík í Mýrdal. Þetta er fornfræg sjóbirtingsslóð, þekkt fyrir væna fiska og rómað fyrir náttúrufegurð. Áin á upptök sín við svokallað Rafstöðvarlón sem er sunnan við bæinn Botna og rennur í tveimur kvíslum úr vatninu. Veiði er í báðum kvíslunum, einkum þó þeirri vestari. Níu merktir veiðistaðir eru í ánni en einnig veiðist oft fiskur á ómerktum veiðistöðum. Þá gefur oft vel í Rafstöðvarlóni og Fljótsbotnum, og þaðan fást stundum stærstu fiskarnir á svæðinu. Besti veiðitíminn í Eldvatnsbotnum er ágúst mánuður og sjóbirtingurinn er hér fyrr á ferðinni en víðast annars staðar.
| Eldvatnsbotnar - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
U.þ.b 250 km. frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: |
Rafsstöðvarlón, Fljótsbotnar og um 2 km í hvorri kvísl með 9 merktum veiðistöðum. Frá 2. júlí - 27. júlí má eingöngu veiða í Rafstöðvarlóni og Fljótsbotnum. |
| Tímabil: |
2. júlí til 10. október. |
| Veiðileyfi: |
Tvær stangir í tvo daga í senn nema í júlí þegar seldar eru heilar vikur frá föstudegi til föstudags. Stangirnar tvær eru seldar saman. |
| Daglegur veiðitími: |
7-13 og 16-22, 2. júlí til 13. ágúst og 7-13 og 15-21, 14. ágúst til 10. október. Veiði hefst og lýkur á miðjum degi. |
| Fjöldi stanga: |
2 |
| Leyfilegt agn: |
Fluga, maðkur og spónn en mælst til þess að einungis sé veitt á flugu í ánni. |
| Vinsælar flugur: |
Flæðamús, Black Ghost, Heimsæta, Nobblerar og Peacock. |
| Veiði síðastliðið ár: |
|
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Nýtt og vel útbúið með góðum tækjum. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, tvö þeirra með tveimur rúmum og það þriðja með einu rúmi. Húsið er bæði raf og gasvætt og m.a. er örbylgjuofn í eldhúsinu. Sængur fyrir fimm manns eru í húsinu en veiðimenn leggja sjálfir til rúmfatnað og hreinlætisvörur. Heimilt er að koma í húsið einni klukkustund áður en veiði hefst og ber að yfirgefa það hreint og snyrtilegt eigi síðar en á sama tíma á brottfarardegi.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Fjarlægðin frá Reykjavík er um 250 km en ekið er eftir þjóðvegi nr. 1 um 50 km leið austur fyrir Vík í Mýrdal. Þar er beygt til hægri á afleggjara að bænum Botnar. Afleggjarinn er um 6,5 km langur og er farið um hlaðið á bænum, beygt til hægri og áfram um 2 kílómetra að veiðihúsinu.
| Eldvatnsbotnar - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 25/6 - 23/7 |
2 |
29.900 |
| 23/7 - 12/8 |
2 |
8.900 |
| 12/8 - 26/8 |
2 |
10.900 |
| 26/8 - 11/9 |
2 |
9.900 |
| 11/9 - 25/9 |
2 |
8.900 |
| 25/9 - 10/10 |
2 |
7.900 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Ná í kortNá í kort
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
Athugið:
Eldvatnsbotnar eru það neðarlega á Skaftársvæðinu að það er mun snemmgengara en önnur hefðbundin sjóbirtingssvæði. Júlí og fram í miðjan ágúst er besti tíminn og hvetjum við veiðimenn til að prufa að fara á þeim tíma til veiða.
Fara efst á síðu