tEfri-Haukadalsá í Dölum – Silungsveiði með laxavon
Haukadalsá í Dölum
Haukadalsá efri er þekkt fyrir góða sjóbleikjuveiði. Veiðisvæðið spannar 11 kílómetra frá Hlaupagljúfrum að Haukadalsvatni, þannig að rúmt er um stangirnar tvær. Veiði hefst 20. júní og stendur til 15. september. Efsti hluti árinnar fellur um gljúfur en neðar er áin lygnari, og hentar sjóbleikju vel. Lax veiðist einnig í ánni, en sjaldnast í miklum mæli eða tíu til fimmtán laxar að meðaltali. Gott veiðihús í landi Leirskála fylgir ánni, með svefnaðstöðu fyrir átta manns og barnakoju.
| Haukadalsá í Dölum - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Haukadalsá, Dalir rúmlega tveir tímar frá Reykjavík |
| Veiðisvæði: | Haukadalsá er um 11 km löng og fjölmargir veiðistaðir. Veitt er frá Hlaupagljúfri niður í Haukadalsvatn |
| Tímabil: | 20. júní til 15. september |
| Veiðileyfi: | Tveggja daga holl. Stangirnar tvær eru seldar saman. |
| Daglegur veiðitími: | Veiðitíminn er 12 klst. á dag frá 7-13 og 16-22 en eftir 15. ágúst er seinni vaktin færð fram um klukkustund. |
| Fjöldi stanga: | 2 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og maðkur |
| Vinsælar flugur: | Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn |
| Veiði síðastliðið ár: | Veiði undanfarinna ára hefur yfirleitt verið um 500-900 bleikjur. Einnig slæðast með stöku laxar og sumarið 2007 vour þeir 34 talsins |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Leiðarlýsing að veiðihúsi
Gott veiðihús í landi Leirskála fylgir ánni, með svefnaðstöðu fyrir átta manns og barnakoju. 8 sængur og koddar eru á staðnum en veiðimenn koma með sængurver. Gasgrill er við húsið. Heitum potti hefur verið komið fyrir á nýrri verönd við húsið. Veiðimenn skulu ganga vel frá eftir sig og taka sorp með sér.Annað
Stangirnar eru aðeins seldar tvær saman.Fara efst á síðu