t
Hítarvatn – Frábært silungsveiðivatn á Mýrum
Hítarvatn
Mjög góð silungsveiði er í vatninu, bæði urriði og bleikja og eru dæmi þess að veiðimenn komi heim með yfir hundrað fiska eftir helgardvöl við Hítarvatn.
Veitt er með allri strandlengju vatnsins.
Svæðið er tilvalið fyrir fjölskyldur til að eyða góðri helgi saman við veiði. Mikil náttúrufegurð er við vatnið.
Athugið að í góðu veðri getur verið mikið um mý svo takið með ykkur flugnanet.
| Hítarvatn - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Á Mýrum, 120 km frá Reykjavík. |
| Veiðisvæði: |
Hítarvatn allt. Oft getur það borgað sig að labba inn með vatninu þar sem lækir renna í það, þar getur verið mjög góð veiði. |
| Tímabil: |
29. maí til 31. ágúst |
| Veiðileyfi: |
Einn eða fleiri dagar í senn frá morgni til kvölds. Hægt er að fá veiðileyfi í hálfan dag keypt á bænum Hítardal. |
| Daglegur veiðitími: |
Frá morgni til kvölds, oft veiðist best á kvöldin. |
| Fjöldi stanga: |
30 |
| Leyfilegt agn: |
Fluga, maðkur og spónn. |
| Vinsælar flugur: |
Black Zulu, Butcher. |
| Veiði síðastliðið ár: |
Nokkur þúsund silungar veiðast í Hítarvatni á hverju sumri. |
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Gott gangnamannahús með hreinlætisaðstöðu er við vatnið, í því er hægt að leigja sér gistingu gegn hóflegu gjaldi. Í húsinu eru tvö aðskilin herbergi. Í hvoru þeirra er svefnrými fyrir átta.
Húsið er leigt út af Guðrúnu Jónsdóttur og Finnboga Leifssyni á bænum Hítardal, sími 437-1883. Við vatnið er tjaldstæði og því fylgir heinlætisaðstaða í ofangreindu húsi.Leiðarlýsing að veiðihúsi
Frá Borgarnesi að Hítarvatni eru 46 km. Ekið er út af þjóðveginum vestur á Snæfellsnes, sunnan Hítarár og haldið eftir vegi nr. 539 fram hjá bænum Hítardal.
| Hítarvatn - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 29/5 - 31/8 |
30 |
2.500 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Ná í kortNá í kort
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
Fara efst á síðu