t
Hjaltadalsá og Kolka – Gjöfular sjóbleikjuár með laxavon
Hjaltadalsá og Kolka
Hjaltadalsá og Kolka eru gjöfular sjóbleikjuár með góðri laxavon í næsta nágrenni Hóla í Hjaltadal. Umhverfi Hjaltadalsár og Kolku er stórbrotið og lætur engan ósnortinn. Bleikjan dreifir sér nánast um alla ána en laxinn er í nokkrum hyljum í ánni, t.d. Efri Ásbreiðu, báðum Brúarhyljunum, Víðineshyl, Ármótunum og Stórgrýtisstað. Hjaltadalsá hefur allt sem prýðir góða á en hún skiptist milli flúða, fossa, fallegra breiða og glæsilegra hylja.
Í Kolku eru gljúfur og virðist laxinn vera mest á þeim slóðum en hann dreifir sér reyndar ágætlega á þessu víðfema vatnasvæði. Vatnið í Kolku er oftast litað og tekur fiskurinn samt sem áður ágætlega í ánni. Fyrir ofan stíflu í Kolku er staðbundinn urriði. Í Stífluhyl safnast oft saman mikið af fiski en 6 veiðistaðir eru fyrir ofan hann.
| Hjaltadalsá og Kolka - Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Norðanverður Skagafjörður, í nágrenni Hofsóss og Hóla í Hjaltadal. |
| Veiðisvæði: |
Í Kolku eru 15 merktir veiðistaðir upp að stíflu og í Hjaltadalsá eru um 40 merktir veiðistaðir. Kolka og Hjaltadalsá sameinast nokkuð frá sjó og renna sameinaðar til sjávar og eru þar 5 merktir veiðistaðir. Aðgengi að ánni er mjög gott og dugir 4 x 4 fólksbíll til að athafna sig við hana. |
| Tímabil: |
20. júní til 30. september. |
| Veiðileyfi: |
Tveir dagar í senn. Stangirnar eru annað hvort seldar allar saman eða tvær og tvær saman. Tillaga að svæðaskiptingu er í veiðihúsi. |
| Daglegur veiðitími: |
Til og með 15. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7-13 og 16-22. Frá 15. ágúst til 15. september er veiðitíminn frá kl. 7-13 og 15-21. Eftir 15. september er heimilt að stytta hvíldartímann að eigin ósk. |
| Fjöldi stanga: |
4. |
| Leyfilegt agn: |
Fluga, maðkur og spónn. |
| Vinsælar flugur: |
Ýmsar silunga- og laxaflugur |
| Veiði síðastliðið ár: |
|
| Umsjónaraðili: |
|
|
Veiðihús
Ágætis hús fylgir veiðileyfum. Í húsinu sem er 80 fm eru 2 svefnherbergi auk svefnlofts. Svefnaðstaða fyrir 6-8 manns. Einnig er í húsinu salerni, eldhúskrókur, rennandi kalt vatn og kolagrill. Veiðimenn verða að koma með sængurföt eða svefnpoka sjálfir. Þetta er ágætis hús, gott afdrep fyrir veiðimenn. Það stendur við Efri ás. Fyrir þá sem vilja er hægt að fá góða gistingu (svefnpokapláss eða uppábúin rúm) á Hólum í Hjaltadal. Rafmagn er í húsinuLeiðarlýsing að veiðihúsi
Hjaltadalsá og Kolka er um 300 km frá Reykjavík. Ekið er hjá Varmahlíð í Skagafirði og í áttina að Sauðárkróki. Þaðan er ekið norður yfir brýrnar á Héraðsvötnum. Þegar komið er yfir brýrnar er beygt til hægri, og keyrt í ca. 10 mínútur þangað til komið er að skilti merkt ,,Heim að Hólum”. Þar er beygt upp Hjaltadal og ekið áfram þar til komið er að brú yfir Hjaltadalsá. Veiðihúsið stendur við Efri-Ás. Einnig er hægt fara þjóðveg 1 áfram norður frá Varmahlíð og beygja til vinstri við skilti sem merkt er Hofsós-Siglufjörður.
| Hjaltadalsá og Kolka - Verðskrá 2010 |
| Veiðidagar |
Stangarfjöldi |
Félagsmenn |
| 20/6 - 6/7 |
4 |
7.600 |
| 6/7 - 11/9 |
4 |
10.800 |
| 11/9 - 30/9 |
4 |
7.600 |
-
Vídeó
Engin vídeó skráð
-
Myndasíður
Engar myndasíður skráðar
-
Veiðikort
Ná í kort
-
Veiðistaðalýsing
Engin lýsing skráð
Fara efst á síðu