Hörðudalsá í Dölum - Tilvalin fyrir fjölskylduna

Hörðudalur er syðstur dala í Dalasýslu. Um hann rennur Hörðudalsá en dalurinn klofnar í Vífilsdal og Laugardal. Dalurinn gengur suður frá Hvammsfirði og er allt umhverfi sérlega fallegt. Í gegnum tíðina hefur Hörðudalsá verið afburða sjóbleikjuá og í góðu sumri hafa veiðst þar yfir 1000. Hin síðari ár hefur bleikjuveiði þó dregist saman líkt og víða annarsstaðar á landinu. Í ána gengur einnig eitthvað af laxi og meðalveiði síðustu fimmtán ára er 45-55 laxar. Veiðisvæðið spannar um 10 kílómetra.
Hörðudalsá í Dölum - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Nágrenni Búðardals í um 165 km fjarlægð frá Reykjavík
Veiðisvæði: Hörðudalsá utan friðunarsvæðis efst í Vífilsdalsá innan við samnefndan bæ. Ekki er leyft að veiða í Fjórðungssíki sem rennur til Hörðudalsár við veiðistað númer 14 né heldur í Hundasíki og Köldukvísl sem koma í ána við veiðistað númer 17. Frá 21. september er óheimilt að veiða í Laugá svo og ofan við brú á milli Hlíðar og Tungu.
Tímabil: 1. júlí til 30. september.
Veiðileyfi: Tveir dagar í senn frá hádegi til hádegis. Veitt er á þrjár stangir en í september má aðeins veiða með tveimur dagsstöngum. Sökum niðursveiflu á bleikjustofninum er kvóti átta bleikjur á stangardag. Í september er tveggja laxa kvóti á dagsstöng en eftir það má veiða og sleppa. Veiðimenn eru hvattir til þess að sleppa tveggja ára laxi. Stangirnar eru seldar saman.
Daglegur veiðitími: Veiðitíminn á silungasvæðinu er 12 tímar á dag á tímabilinu frá kl. 7 - 22. Frá og með 14. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7 - 21.
Fjöldi stanga: 3
Leyfilegt agn: Aðeins er leyft að veiða með flugu og maðki.
Vinsælar flugur: Hinar ýmsu bleikjuflugur, straumflugur sem og silungapúpur.
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihúsið er komið til ára sinna en þar eru tvö svefnherbergi. Annars vegar er fjögurra manna herbergi með kojum og hins vegar tveggja manna herbergi með kojum. Vöðlugeymsla er utan á húsinu. Frystikista er í húsinu.

Annað

Tilboð sumarið 2010. Þrjár stangir á verði tveggja.
Hörðudalsá í Dölum - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
1/7 - 10/7 3 11.900
10/7 - 14/7 3 13.900
14/7 - 22/7 3 15.900
22/7 - 30/7 3 17.900
30/7 - 15/8 3 19.900
15/8 - 31/8 3 17.900
31/8 - 8/9 2 17.900
21/9 - 30/9 2 15.900
Fara efst á síðu
 
Icelandic English Spanish German French