Hraunsfjörður - Spennandi nýjung á Snæfellsnesi

Hraunsfjörður er mjög skemmtilegt silungsveiðisvæði. Um er að ræða lón fyrir innan stíflu við innri brú yfir Hraunsfjörð á Snæfellsnesi. Svæðið er víðáttumikið og mjög víða má verað var við fisk.
Innan við stíflu má eiga von á laxi þegar líður á sumarið. Bleikja heldur sig með kantinum á Berserkjahrauni sem liggur að vatninu. Er líður á sumarið færir bleikja sig oft innar í lónið. Þarna veiðist sjóbleikja, sjóbirtingur og lax. Ekki flæðir inn í lónið nema í stórstreymi og vatnið því nánast ferkst. Á hverju ári veiðist nokkuð af laxi sem numið hefur land eftir að hafbeitarstöði var lögð niður. Oft á tíðum er mjög góð silungsveiði þarna og bleikjan er væn.

Hraunsfjörður - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Á Snæfellsnesi
Veiðisvæði: Allt lónið innan við stíflu. Veiði neðan stíflu er bönnuð
Tímabil: Veiðitíminn er frá 1.apríl til og með 30. september.
Veiðileyfi: Einn dagur í senn.
Daglegur veiðitími: Frá kl. 7 - 23
Fjöldi stanga: Ótakmarkaður
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn
Vinsælar flugur: Ýmsar silungaflugur, gjarnan þyngdar.
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Ekkert veiðihús en stefnt að afdrepi með salernisaðstöðu við brúna.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Hraunsfjörður er í um 180 km fjarlægð frá Reykjavík séu farin Hvalfjarðargöng. Ekið er sem leið liggur upp í gegnum Borgarnes og síðan Mýrar og yfir Vatnaheiði í átt að Stykkishólmi. Er komið er yfir heiðina er beygt til vinstri í átt að Grundarfirði og síðan aftur til vinstri eftir um 4 km við skilti er vísar á veiðisvæði.
Hraunsfjörður - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
Hraunsfjörður er hluti af veiðikortinu
1/4 - 30/9 Ótakmarkaður 1.500
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French