Langavatn – Gott silungsveiðivatn í Borgarfirði

Langavatn er í sunnanverðum Langadal í Mýrasýslu, norðaustur af Grímsstaðamúla. Hæð þess yfir sjó er 215 metrar og vatnið er um 5,1 km að flatarmáli. Mesta dýpi vatnsins er um 36 metrar. Í það rennur Langavatnsá að norðan en Beilá að austan. Úr suðvesturhorni þess fellur Langá til suðurs. Langavatn hefur verið notað til vatnsmiðlunar og því getur yfirborðshæð þess verið nokkuð breytileg. Í vatninu er bæði bleikja og urriði og innan um leynast mjög vænir fiskar. Helstu veiðistaðir eru austarlega í vatninu við hólma sem eru fram undan leitarmannakofa við vatnið. Góðir veiðistaðir eru einnig við útfall Langár. Daglegur veiðitími er frá kl. 7 – 24 en jafnan gefur best á morgnana og á kvöldin. Í vatnið er seldur ótakmarkaður fjöldi stanga og frítt er fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára í fylgd með fullorðnum.
Langavatn - Almennar upplýsingar
Staðsetning: U.þ.b 98 km frá Reykjavík
Veiðisvæði: Vatnið allt.
Tímabil: 15. júní – 30. september.
Veiðileyfi: Fáanlegt í einn eða fleiri daga í senn.
Daglegur veiðitími: 7 – 24
Fjöldi stanga: Ótakmarkaður
Leyfilegt agn: Allt löglegt agn
Vinsælar flugur: Allar smáar flugur eru vinsælar í Langavatnið. Prófið endilega Peacoc og fleiri þessháttar, kúluhausar hafa gefið vel.
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Engin gisting er við Langavatn en nægt rými til að tjalda. Engin salernisaðstaða er heldur á svæðinu.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Til að komast að Langavatni er ekið sem leið liggur eftir þjóðvegi nr. 1 í gegnum Borgarnes að Svignaskarði og þar tekinn afleggjari á vinstri hönd upp með Gljúfurá. A fleggjarinn er 13 km langur og er oftast vel fólksbílafær en það er þó ekki verra að vera a.m.k. á 4x4 fólksbíl. Þá er einnig fært upp með Langánni.

Veiðileyfi í Langavatn eru einnig seld hjá Birnu Konráðsdóttur á Borgum.
Langavatn - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
15/6 - 20/9 Ótakmarkaður 1.000
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French