Staðartorfa og Múlatorfa, Laxá í Aðaldal

Veiðisvæðin kennd við Staðartorfu og Múlatorfu í Laxá í Aðaldal eru með skemmtilegri urriðaveiðisvæðum sem völ er á. Það er því við hæfi að “Torfurnar” svokölluðu séu fyrstu alvöru urriðaveiðisvæðin sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður félagsmönnum sínum upp á.

Aðeins er leyfð fluguveiði og eru veiðimenn hvattir til þess að ganga vel um svæðið og sleppa stærri urriðanum. Mikið fuglalíf er við Laxá sem krefst varfærni veiðimanns við bakkana.

Svæðin tvö eru seld ýmist saman sem fjögurra stanga veiðisvæði eða sitt í hvoru lagi sem tvö tveggja stanga svæði. Veiðarnar eru á svipuðum nótum og þekkist ofar í Laxárdal og í Mývatnssveit. Hins vegar er meðalstærð urriðans ekki jafn góð, en urriðar að tíu pundum hafa þó veiðst á svæðinu, auk þess sem 3-4 punda fiskar eru býsna algengir.
Meðalveiði á stangirnar fjórar er rétt undir 1000 urriðum á sumri.
Hér er um frábæran kost að ræða fyrir áhugamenn um urriðann í Laxá, og góður kostur fyrir vinahópa eða fjölskyldur. Aflahámark er 4 silungar á stöng sem veiðimaður má hirða.

”Vegna bágs ástands laxastofns svæðisins er laxinn friðaður fyrir allri veiði. Slysist lax til að taka fluguna ber að sleppa honum. Ef að lax særist það illa að honum sé ekki hugað líf skal koma honum til landeigenda.”
Staðartorfa og Múlatorfa, Laxá í Aðaldal - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Veiðisvæðið er í um 90 km. fjarlægð frá Akureyri, um 20 mínútna akstur frá Húsavík
Veiðisvæði: Veiðisvæðið nær frá Laxárvikjun niður að veiðimörkum við Eyvindarlæk. Veiðibók er staðsett í veiðiskúr á svæðinu.
Agengi er gott og fólksbílafært að flestum veiðistöðum
Tímabil: 20. maí til 31. ágúst
Veiðileyfi: Frá morgni til kvölds, ýmist eru seldar tvær eða fjórar stangir saman.
Daglegur veiðitími: Veitt er frá 07.00 til 13.00 og 16.00 til 22.00
Fjöldi stanga: 2-4
Leyfilegt agn: Eingöngu fluguveiði. ”Vegna bágs ástands laxastofns svæðisins er laxinn friðaður fyrir allri veiði. Slysist lax til að taka fluguna ber að sleppa honum. Ef að lax særist það illa að honum sé ekki hugað líf skal koma honum til landeigenda.”
Vinsælar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn
Veiði síðastliðið ár: Veiði undanfarinna ára hefur yfirleitt verið um 800-1000 urriðar
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðimenn hafa aðgang að veiðiheimilinu í Árnesi fram til 29/6.
Þar eru sjö tveggja manna herbergi með baði, auk tveggja eins manns herbergja.
Eftir það er hægt að fá aðgang að Veiðihúsinu við Lynghól. Lynghóll er staðsettur í landi Knútsstaða og þar eru fimm herbergi með svefnaðstöðu fyrir tíu manns Frá Lynghól er um tíu mínútna akstur á veiðisvæðin.
Verð fyrir gistingu er kr. 4.900. á mann.

ATHUGIÐ AÐ GISTINGU ÞARF AÐ PANTA SÉRSTAKLEGA Á SKRIFSTOFU SVFR ÞAR SEM HÚN GETUR VERIÐ UPPPÖNTUÐ OG ER SELD AUKALEGA. GISTINGU SKAL PANTA Á SKRIFSTOFU SVFR.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Beygt er af Húsavíkurvegi við bæjarmerki Árness og er veiðhúsið staðsett við bæjarstæðið. Frá Húsavík að Árnesi er um fimmtán mínútna akstur

Að Lynghóli er beygt af Húsavíkurvegi við Knútsstaði. og er Lynghóll rautt hús á hægri hönd.
Staðartorfa og Múlatorfa, Laxá í Aðaldal - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
Staðartorfa/Múlatorfa
22/5 - 31/5 2 9.900
5/6 - 28/6 2 9.900
5/7 - 14/7 2 9.900
18/7 - 31/7 2 9.900
1/8 - 31/8 2 9.900
Presthvammur
22/5-31/5 1 9.900
5/6-29/6 1 9.900
1/8-31/8 1 9.900
3/7-31/7 1 9.900
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French