Veiðisvæði Presthvamms, Laxá í Aðaldal

Veiðisvæðið fyrir landi Presthvamms í Laxá í Aðaldal er eitt besta urriðaveiðisvæði sem völ er á hérlendis. Sú staðreynd að aðeins er veitt á eina stöng daglega gerir svæðið einkar spennandi. Þarna er veiðimaðurinn einn með sjálfum sér. Talsvert af mjög stórri bleikju veiðist einnig í Presthvammi en laxi ber veiðimönnum skylda til að sleppa.

Aðeins er leyfð fluguveiði og eru veiðimenn hvattir til þess að ganga vel um svæðið og sleppa stærri urriðanum. Mikið fuglalíf er við Laxá sem krefst varfærni veiðimanns við bakkana.

.Aflahámark er 4 silungar á stöng sem veiðimaður má hirða.Algeng stærð urriðans er á bilinu eitt til tvö pund. Einstaka fiskar eru stærri og sést hafa fiskar um fimm pund.
Flestir veiðimenn nota hefðbundnar straumflugur, en undanfarin ár hafa andstreymisveiðar með púpum verið að ryðja sér til rúms, enda hentar Laxá einstaklega vel til slíkra veiða. Eins á þurrfluguveiði mjög vaxandi fylgis að fagna við Laxá.

ATHUGIÐ AÐ Á SVÆÐINU ER BÁTUR OG ER HANN NOTAÐUR Á EIGIN ÁBYRGÐ

”Vegna bágs ástands laxastofns svæðisins er laxinn friðaður fyrir allri veiði. Slysist lax til að taka fluguna ber að sleppa honum. Ef að lax særist það illa að honum sé ekki hugað líf skal koma honum til landeigenda.”
Presthvammur í Aðaldal - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Veiðisvæðið er í um 90 km. fjarlægð frá Akureyri, um 20 mínútna akstur frá Húsavík
Veiðisvæði: Veiðisvæðið nær frá Laxárvikjun að austang niður að veiðisvæði Klambra. Veiðibók er staðsett í veiðiskúr á svæðinu.
Agengi er gott og fólksbílafært að flestum veiðistöðum
Tímabil: 20. maí til 31. ágúst
Veiðileyfi: Frá morgni til kvölds, ein stöng er seld daglega.
Daglegur veiðitími: Veitt er frá 07.00 til 13.00 og 16.00 til 22.00
Fjöldi stanga: 1
Leyfilegt agn: Eingöngu fluguveiði. ”Vegna bágs ástands laxastofns svæðisins er laxinn friðaður fyrir allri veiði. Slysist lax til að taka fluguna ber að sleppa honum. Ef að lax særist það illa að honum sé ekki hugað líf skal koma honum til landeigenda.”
Vinsælar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðimenn hafa aðgang að veiðiheimilinu í Árnesi fram til 27/6.
Þar eru sjö tveggja manna herbergi með baði, auk tveggja eins manns herbergja.
Eftir það er hægt að fá aðgang að Veiðihúsinu við Lynghól. Lynghóll er staðsettur í landi Knútsstaða og þar eru fimm herbergi með svefnaðstöðu fyrir tíu manns Frá Lynghól er um tíu mínútna akstur á veiðisvæðin.
Verð fyrir gistingu er kr. 4.900. á mann.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Beygt er af Húsavíkurvegi við bæjarmerki Árness og er veiðhúsið staðsett við bæjarstæðið. Frá Húsavík að Árnesi er um fimmtán mínútna akstur

Að Lynghóli er beygt af Húsavíkurvegi við Knútsstaði. og er Lynghóll rautt hús á hægri hönd.


Presthvammur í Aðaldal - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
22/5 - 31/5 1 9.900
5/6 - 29/6 1 9.900
3/7 - 31/7 1 9.900
1/8 - 31/8 1 9.900
Fara efst á síðu
 
Icelandic English Spanish German French