Laxá í Mývatnssveit

Þetta margrómaða veiðisvæði þarf vart að kynna fyrir íslenskum stangaveiðimönnum. Laxá ofan virkjunar er af mörgum talið eitt besta urriðasvæði landsins og þó víðar væri leitað, og þarna má finna sannkallaða paradís þeirra sem beita þurrflugu eða stunda veiðar með andstreymisaðferðum. Náttúrufar og urriðastofn Laxár er einstakur og er SVFR stolt af því að geta boði félagsmönnum sínum aðgang að þessu magnaða veiðisvæði. Laxá í Mývatnssveit nær yfir samnefndan hluta árinnar og efsta hluta Laxárdals og gista veiðimenn í veiðiheimilinu að Hofi. Þar er fæðis- og gistigjald krónur 9.900.-. Athugið að stöngum hefur verið fækkað og veiðitími styttur frá því sem áður var
Laxá í Mývatnssveit - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Veiðisvæðið er í um 90 km. fjarlægð frá Akureyri, um 20 mínútna akstur frá Húsavík
Veiðisvæði: Mývatnssveit og ofanverður Laxárdalur samkvæmt veiðikorti Veiðifélags Laxár og Krákár.

Athugið að viðkvæm náttúra Laxár krefst þess að veiðimenn sýni aðgát í umgengni.
Tímabil: 1. júní til og með 31. ágúst
Veiðileyfi: Boðið er upp á bæði tveggja og þriggja daga holl yfir veiðitímann.
Daglegur veiðitími: Frá klukkan 08.00 til 14.00 og 16.00 til 22.00. Eftir 15. ágúst er seinni vaktin frá 15.00 til 21.00.
Fjöldi stanga: 14
Leyfilegt agn: Eingöngu fluguveiði með flugustöngum, flugulínum og fluguhjólum. Einkrækjur og tvíkrækju eru leyfðar.

Kvóti er fjórir urriðar á dag, tveir á hvorum dagsparti. Veiðimönnum er skylt að sleppa smáfiski undir 35cm að lengd, og að auki eru menn hvattir til þess að sleppa hrygningafiski síðsumars.
Vinsælar flugur: Bleik og blá, Heimasætan, Black Ghost, Peacock, Black Gnat og Krókurinn
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihúsið að Hofi í Mývatnssveit. Þar er boðið upp á fæði og gistingu í tveggja manna herbergjum. Veiðimönnum er heimilt að mæta í hús klukkustund fyrir veiðitíma og þeim ber að hafa rýmt herbergi sín klukkutíma eftir að veiðitíma lýkur.
Laxá í Mývatnssveit - Verðskrá 2010
Veiðidagar Stangarfjöldi Félagsmenn
10/6-13/6 8 23.900
22/6-24/6 6 24.300
4/7-7/7 10 25.900
7/7-9/7 14 25.900
12/7-14/7 7 24.900
20/7-1/8 14 21.900
Stakir dagar frá hád/hád
2/8-16/8 10 18.900
16/8-31/8 11 14.900
Fara efst á síðu
 
Icelandic English Spanish German French