Andakílsá – Þrjár stangir með nýju húsi

Andakílsá er vatnsmikil bergvatnsá fellur til sjávar á ósasvæði Hvítár við Borgarfjarðarbrú, en upptök hennar eru í Skorradalsvatni. Hún rennur um Andakílsárfoss sem er virkjaður.Veiðisvæði árinnar eru tvö, lax og silungsvæði. Mörk þeirra eru við brúna á þjóðvegi 50. Laxasvæðið er ofan við brúna en silungasvæðið tekur við þar fyrir neðan. Gott veiðihús er til afnota fyrir veiðimenn.
Andakílsá - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Í Borgarfirði, 72 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði:Veiðisvæðið nær frá gömlu brú, ofan brúar á þjóðvegi 50, og niður að ósum árinnar. Svæðið er um 4 km. langt og er besti veiðitíminn á fjöru eða á meðan fellur að og frá. Tillaga að skiptingu veiðisvæðisins er í veiðihúsinu.
Tímabil:1. apríl til 30. september.
Veiðileyfi:Einn eða fleiri dagar í senn frá morgni til kvölds.
Daglegur veiðitími:Veiðitíminn á silungasvæðinu er 12 tímar á dag á tímabilinu frá kl. 7 - 22. Frá og með 14. ágúst er veiðitíminn frá kl. 7 - 21.
Fjöldi stanga:3
Leyfilegt agn:Allt löglegt agn er leyfilegt.
Vinsælar flugur:Kúluhausar, Peacock, Heimasæta, Grey Ghost, Teal & Black.
Veiði síðastliðið ár:
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Veiðihúsið er mjög gott og er með þremur 2ja manna herbergjum, baði með sturtu, borðstofu og setustofu. Í húsinu er rafmagn og hiti. Í eldhúsinu eru öll helstu áhöld sem þarf til eldamennsku. Í húsinu eru sex sængur og koddar en veiðimenn koma sjálfir með sængurver, koddaver og lök eða svefnpoka. Veiðimenn mega koma í húsið einni klukkustundu eftir að veiði lýkur daginn fyrir veiðidag og skulu rýma það á sama tíma á brottfarardegi. Ræsta skal húsið rækilega fyrir brottför og taka með sér allt rusl.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Að Andakílsá eru 72 kílómetrar frá Reykjavík (um Hvalfjarðargöng). Ekið er sem leið liggur þjóðveg 1 í átt til Borgarness.Skömmu áður en ekið er yfir Borgarfjarðarbrúna er beygt til hægri inn Borgarfjarðarbraut (þjóðvegur nr. 50) og hún ekin sem leið liggur 7,2 kílómetra í áttina að Hvanneyri. Eftir að ekið hefur verið framhjá bænum Ytri Skeljabrekku er næsti afleggjari valinn til hægri, að bænum Innri Skeljabrekku. Rétt áður en ekið er í hlað á bænum er aftur ekið til hægri, sem leið liggur að veiðihúsi. Merki SVFR er við afleggjara að Innri Skeljabrekku og þess má geta að veiðihúsið er gult og hvitt. Annað

Annað

Helgarverð er kr. 2.000,- hærra.
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French