tSteinsmýrarvötn – Birtingur og bleikja
Steinsmýrarvötn
Steinsmýrarvötn er skemmtilegt veiðisvæði sem veiðimenn geta fengið í einum pakka. Fjórar stangir eru í boði. Vötnin eru mjög skemmtileg en þau samanstanda af 2 vötnum og svo lækjum sem renna úr vötnunum, í þau og á milli og eru þessir staðir oft mjög gjöfulir. Steinsmýrarvötn eru staðsett fyrir neðan bæinn Syðri-Steinsmýri og eru í göngufæri frá veiðihúsinu. Í Steinsmýravötnum er staðbundin bleikja og urriði ásamt sjóbirtingi og sjóbleikju. Vorveiðin á svæðinu er alveg frábær og voru hollin í fyrra að fá alveg upp í 80 fiska hvert. Yfir sumarið eða í júní og júlí veiðist vel af bleikju og er hún gríðarvæn í vötnunum en meðalþyngdin á henni hefur verið rúm 3 pund. Í ágúst byrjar svo sjóbirtingurinn að ganga og er hann að ganga alveg langt fram að áramótum og tímabilið frá ágúst og út veiðitíman því yfirleitt mjög gott.
| Steinsmýrarvötn - Almennar upplýsingar |
|---|
| Staðsetning: | Stutt frá Kirkjubæjarklaustri, um 300 km. frá Reykjavík við bæinn Syðri-Steinsmýri. |
| Veiðisvæði: | Steinsmýrarvötn eru staðsett við Syðri Steinsmýri og samanstanda af tveimur vötnum og svo lækjum sem renna á milli þeirra. Í göngufæri frá veiðihúsinu. |
| Tímabil: | 1. apríl til 20. október. |
| Veiðileyfi: | Veitt er í tvo daga í senn frá hádegi til hádegis. Í vorveiðinni er hámarksveiði 2 sjóbirtingar á stöng á dag, eftir það má veiða og sleppa. Engin kvóti er á bleikju. ATHUGIÐ AÐ STANGIRNAR FJÓRAR ERU ALLTAF SELDAR SAMAN.
Eftir 10. október skal öllum sjóbirtingi sleppt. |
| Daglegur veiðitími: | Veiðitíminn 07:00-13:00 og 16:00-22:00. Eftir 1. september er veitt frá 15:00-21:00. |
| Fjöldi stanga: | 4 |
| Leyfilegt agn: | Fluga og spúnn |
| Vinsælar flugur: | Ýmsar silungaflugur og púpur |
| Veiði síðastliðið ár: | |
| Umsjónaraðili: | |
|
Veiðihús
Virkilega gott veiðihús er á svæðinu og fylgir það með leyfunum. Húsið er með 2 herbergjum og góðu svefnlofti og geta 8 manns hæglega gist í húsinu. Nýr heitur pottur er á pallinum og öll aðstaða til fyrirmyndar. Leiðarlýsing að veiðihúsi
Það eru tæplega 300 kílómetrar úr Reykjavík að svæðunum og eru veiðimenn um 3 tíma að aka þangað. Ekið er sem leið liggur að Kirkjubæjarklaustri og beygt til hægri niður Meðallandsveg (204) rétt áður en komið er að Skaftárbrúnni. Meðallandsvegur er hringvegur þegar ekið er frá Reykjavík og því er einnig hægt að beygja til suðurs/hægri inn á afleggjara Meðallandsvegar (204) nokkru austan við Kúðafljótsbrú.Vídeó
Engin vídeó skráðMyndasíður
Engar myndasíður skráðarVeiðikort
Ná í kortVeiðistaðalýsing
Engin lýsing skráðVeiðiskýrsla
Ná í veiðiskýrslu
Fara efst á síðu